Körfubolti

Óvænt risaskipti í NBA-deildinni | Vandræðabarnið orðið Pelíkani

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
DeMarcus Cousins.
DeMarcus Cousins. Vísir/AP
DeMarcus Cousins, einn besti og fyrirferðamesti stóri maður NBA-deildinni, er á leið í nýtt félag í NBA-deildinni í körfubolta eftir að Sacramento Kings og New Orleans Pelicans sættust á leikmannaskipti í nótt.

Með þessum risaskiptum liðanna munu tveir stórir stjörnuleikmenn spila hlið við hlið því fyrir hjá New Orleans Pelicans er Anthony Davis sem í nótt setti stigamet með því að skora 52 stig í Stjörnuleiknum sem fór einmitt fram í New Orleans.

Sacramento Kings lætur DeMarcus Cousins og Omri Casspi frá sér en fær í staðinn Buddy Hield, Tyreke Evans og Langston Galloway auk tveggja valrétta í fyrstu og annarri umferð nýliðavalsins í sumar.  ESPN segir meðal annars frá.

Sacramento Kings hefur þar með endanlega gefist upp á DeMarcus Cousins sem er mesti vandræðagemlingur deildarinnar. Það efast enginn um hæfileikana þar á bæ en vandamálin eru í kringum samskipti hans við aðra í liðinu ekki síst þjálfarana sem hafa komið og farið hjá Sacramento Kings á undanförnum árum.

DeMarcus Cousins hefur skorað 27,8 stig að meðaltali í leik með Sacramento Kings á tímabilinu sem er það þriðja hæsta hjá leikmanni sem lið lætur fara í sögu NBA. Hinir tveir eru Wilt Chamberlain (38,9 1964-65) og Allen Iverson (31,2 2006-07).

Cousins er einnig með 10,7 fráköst, 4,9 stoðsendingar og 1,3 varin skot í leik og hefur einnig bætt þriggja sitga nýtingu sína.



Það er ljóst að það verður ekkert grín að eiga við þá Anthony Davis og DeMarcus Cousins sem eru eini leikmennirnir í NBA sem hafa verið með 20 stig og 10 frák0st á síðustu fjórum tímabilum. Þeir eru líka ásamt Russell Westbrook þeir einu sem eru með að minnsta kosti 25 stig og 10 fráköst í leik á þessu tímabili.

Lið Sacramento Kings vann aðeins 35 prósent leikja sinna þessi tæpu sjö tímabil sem DeMarcus Cousins lék með liðinu og nú var greinilega komið á endastöð að mati manna þar á bæ. Stanslausar útistöður hans við dómara voru ekki að gera mönnum lífið auðveldlega og menn gáfust upp á því að bíða eftir að hann þroskaðist.







Það fréttist af miklum áhuga New Orleans Pelicans til að fá meiri hjálp fyrir Anthony Davis í sóknarleiknum og liðið var að skoða aðra möguleika. Það að þeir skuli hafa náð í DeMarcus Cousins er mjög athyglisvert en það sýnir kannski svart á hvítu hversu erfitt samlífið hefur verið hjá Sacramento Kings að félagið er tilbúið að láta langbesta leikmanninn sinn fara.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×