Lífið

Óvænt internet-stjarna klædd upp í búninga á meðan hún sefur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Búningarnir eru afar fjölbreyttir.
Búningarnir eru afar fjölbreyttir. Myndir/Laura Izumikawa
Nýbakaðir foreldrar fá oft að heyra sama gamla góða ráðið skömmu eftir að barnið kemur í heiminn: Sofðu þegar barnið þitt sefur. Þetta virðist þó ekki vera efst í huga ljósmyndarands Laura Izumikawa sem eignast nýverið barn. Á meðan barnið hennar sefur klæðir Laura hana nefnilega í hina ýmsu búninga.

Deilir Laura myndunum á Instagram og virðist poppmenningin vera hennar helsti innblástur en dóttir hennar, hin fjögurra mánaða gamla Joey Marie Choi, hefur verið klædd í afar fjölbeytta búninga allt frá Star Wars til Beyoncé.

Myndirnar vekja alltaf mikla athygli og fær hvert stykki yfirleitt þúsundir „like-a“ en Joey Marie hefur þó ekki hugmynd um að hún sé orðin að internet-stjörnu, enda yfirleitt sofandi á meðan myndirnar eru teknar. Svo er hún auðvitað bara fjögurra mánaða gömul.

Sjá má nokkrar af bestu myndunum hér að neðan auk myndbands af því hvernig hún fer að því að ná þessum myndum. Fleiri myndir má sjá á Instagram-síðu Lauru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×