Viðskipti innlent

Óvænt boðað til sáttafundar í álversdeilunni

Heimir Már Pétursson skrifar
Ríkissáttasemjari boðaði deiluaðila í álversdeilunni í gærkvöldi óvænt til samningafundar næstkomandi mánudag. Formaður verkalýðsfélagsins Hlífar segir að útflutningsbanni á áli frá fyrirtækinu verði haldið til streitu þar til samningar hafi náðst.

Mikil harka er hlaupin í deilu verkalýðsfélaganna í Álverinu í Straumsvík við fyrirtækið sem staðið hefur yfir í um ár. Fyrirtækið kærði boðað útflutningsbann verkalýðsfélagsins Hlífar til félagsdóms, sem úrskurðaði verkalýðsfélaginu í vil á þriðjudagskvöld. Útflutningsbannið hófst síðan á miðnætti þann dag og stöðvuðu verkfallsverðir tilraunir yfirmanna fyrirtækisins til að ganga í störf hafnarverkamanna við útskipun á áli á miðvikudag.

Deiluaðilar komu síðar þann dag til fundar hjá Ríkissáttasemjara en engin niðurstaða varð á þeim fundi og að honum loknum var ekki boðað til nýs fundar. Kolbeinn Gunnarsson formaður Hlífar fékk þó skilaboð frá Ríkissáttasemjara í gærkvöldi.

„Ríkissáttasemjari er búinn að boða til fundar núna á mánudaginn klukkan þrjú. Ég reikna með að þar verði framhald þeirra viðræðna sem við erum búnir að vera í við þá. Það voru náttúrlega á síðasta fundi ýmsar spurningar sem átti eftir að svara og annað. Ég ætla að vona að menn svari þeim á þessum fundi, frá báðum aðilum,“ segir Kolbeinn.

Þannig að menn eru eitthvað að þreifa hver á öðrum, þið eruð ekki bara í störukeppni?

„Menn eru auðvitað alltaf að reyna að ná lendingu. En það kemur alltaf upp þetta sama; að þeir séu ekki tilbúnir að gera neina kjarasamninga nema að opna allt sem snýr að þessari yfirlýsingu um verktökuna,“ segir Kolbeinn.

Hins vegar eigi eftir að svara ýmsum öðrum spurning til að menn geti farið að mjaka viðræðum eitthvað áfram. Tilgangurinn með útflutningsbanninu sé að þrýsta fyrirtækinu til alvöru viðræðna við samningaborðið.

En fulltrúar Ísal segja fyrirtækið hafa boðið sömu launahækkanir og aðrir hafi fengið ofan á laun sem sem séu nú þegar mjög góð. Fyrirtækið vilji hins vegar  einnig njóta sömu réttinda og önnur fyrirtæki um útvistun verkefna sem ekki tengist kjarastarfsemi fyrirtækisins.

Næsta skip er væntanlegt til Straumsvíkur á mánudag og lestun þess ætti að hefjast strax á þriðjudag.

Það liggur alveg ljóst fyrir að þið munuð stöðva þá útskipun ef ekki hefur náðst samningur?

„Já, já. Það er verkfall á álútflutning og við höldum því til streitu,“ segir Kolbeinn Gunnarsson.


Tengdar fréttir

Langvarandi deilu er hvergi nærri lokið

Engu hefur enn miðað í kjaraviðræðum starfsmanna Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara í apríl í fyrra.

Verkfall hófst á miðnætti

Félagsdómur úrskurðaði í gærkvöldi að útflutningsbann starfsmanna í álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík væri löglegt og hófst það því á miðnætti. Mun því ekkert ál verða flutt út frá Straumsvíkurhöfn á næstunni. Dómurinn kom saman í kjölfar þess að Samtök atvinnulífsins kærðu bannið fyrir hönd álversins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×