Bíó og sjónvarp

Óútskýrt atvik sést í myndinni um Reyni

Benedikt Bóas skrifar
Baldvin Z segist vera  segist vera efasemdarmaður um allt yfirnáttúrulegt en við tökur á kvikmynd hans um Reyni sterka hafi eitthvað gerst fyrir framan augun á honum sem hann geti ekki útskýrt.
Baldvin Z segist vera segist vera efasemdarmaður um allt yfirnáttúrulegt en við tökur á kvikmynd hans um Reyni sterka hafi eitthvað gerst fyrir framan augun á honum sem hann geti ekki útskýrt. Vísir/Garðar
„Fyrir myndina trúði ég ekkert á svona en ég efast núna um efasemdir mínar,“ segir leikstjóri heimildarmyndarinnar um Reyni sterka, Baldvin Z. Í myndinni sjást, ef grannt er skoðað, yfirnáttúrulegir hlutir. „Ég er efasemdarmaður og trúi ekki á neitt svona en það fljúga hlutir um herbergið þegar ég er að fara út í hluti sem ég ætti ekkert að vera segja frá,“ segir hann.

Í myndinni er viðtal við Lindu Björgu, dóttur Reynis, en það hafði tekið um tvö ár að fá hana til að taka þátt í myndinni. „Þegar horft er á myndina þá sést að hún er eins og pabbi hennar, rammgöldrótt. Ég sá að hún vissi hvað ég var að hugsa þegar við settumst niður til að taka viðtalið. Ég var kominn til að spyrja hana ákveðinna spurninga.

Ég var búinn að vinna mig í átt að spurningunni og þegar ég ber hana upp þá tekur tökumaðurinn, Jóhann Máni Jóhannsson, eftir því að öll ljós slokkna. Við skoðum málin og batteríin, sem voru full þegar við byrjuðum að taka, eru skyndilega orðin tóm. Ramminn dökknar niður og þetta var hálf ónýtt. Svo við tökum viðtalið aftur.

Þá segir hún mér skyndilega að Reynir sé kominn í herbergið, og við ákváðum að taka viðtal við hann –svona fyrst hann var kominn. Þegar ég fer svo að tala aftur við Lindu og segja henni frá hlutum sem höfðu gerst í ferlinu þá fara hlutir að fljúga um herbergið – og þetta sést í myndinni. Það hafa nokkrir áhorfendur séð þetta. 

Ég stoppa ekkert tökuna og fer að taka upp hluti sem höfðu fallið til jarðar á óútskýrðan hátt og raða þeim aftur upp. Svo mundi ég ekkert hvað ég ætlaði að segja við hana þannig að ég fór aldrei þangað aftur.

Eftir þetta þá vorum við, ég, Jóhann og hljóðmaðurinn sem var þarna líka, í algjöru losti.“

Baldvin segir að þetta hafi ekki verið í eina skiptið sem eitthvað yfirnáttúrulegt gerðist. Í eftirvinnslunni þar sem hann sat með klipparanum að ákveða hvernig þessi saga yrði sögð komu tvær leiðir til greina. Baldvin ákvað að fylgja sannfæringu sinni og nánast í sömu mund komu skilaboð frá Lindu.

„Þá var Reynir búinn að segja við hana að ég ætti að standa við þessa ákvörðun. Hann væri sáttur við hvernig myndin liti út og ætlaði að hætta að skipta sér af.“

Hér fyrir neðan má sjá umrætt atriði en hægt er að fletta myndunum ramma fyrir ramma.


Tengdar fréttir

Ótrúlegt lífshlaup Reynis sterka

Heimildarmyndinn Reynir sterki, Beyond Strength, er frumsýnd á föstudaginn í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói, Akureyri.

Fjölmennt á heimildarmynd um Reyni sterka

Það var margt um manninn á forsýningu heimildarmyndarinnar Reynir sterki á þriðjudaginn. Myndin segir frá lífshlaupi Reynis Arnar Leóssonar sem á heimsmet í heimi aflrauna en átti átakanlega ævi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×