Viðskipti erlent

Óttast umfang skuldavandans í Kína

Sæunn Gísladóttir skrifar
Greiningaraðili hjá Credit Suisse telur að bóla ríki á húsnæðismarkaði í Kína.
Greiningaraðili hjá Credit Suisse telur að bóla ríki á húsnæðismarkaði í Kína. vísir/AFP
Á fyrsta ársfjórðungi 2016 bættist billjón dollara við heildarumfang skulda í Kína. Óttast er að skuldir Kína séu að verða of miklar.

Business Insider greinir frá því að skuldir einkaaðila í Kína séu orðnar svo miklar að eina dæmið um slíkar skuldir hafi fundist á Írlandi rétt fyrir kreppu árið 2008, samkvæmt greiningaraðilanum Andrew Garthwaite hjá Credit Suisse. Þegar skuldirnar voru svona miklar á Írlandi var stutt í að fasteignabólan þar í landi spryngi og að atvinnuleysi þrefaldaðist.

Garthwaite segir bólu ríkja á húsnæðismarkaði í Kína. Hann bendir á að lán deilt með landsframleiðslu hafi hækkað meira á sjö ára tímabili en í nokkru öðru landi (fyrir utan Írland fyrir kreppu). Skuldir deilt með vergri landsframleiðslu í Kína eru nú 36 prósentum hærri en meðaltal síðustu 25 ára og nema um 240 prósentum.

Erfitt er að spá um þróun skuldavandans í Kína, en engu að síður er hann verri þar í landi en í nokkru öðru landi í dag. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 12. maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×