Innlent

Óttast að nýuppgötvuð erfðablöndun skemmi laxastofninn

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Fiskifréttir segja frá því í dag að bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar á vegum Hafrannsóknarstofnunar gefi sterkar vísbendingar um að strokulaxar af norskum eldisuppruna hafi sloppið úr eldiskvíum, hrygnt og blandast villtum löxum í nágrenni eldissvæða - og skýr merki séu um erfðablöndun í tveimur laxastofnum í Botnsá og Sunndalsá.

Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir þessar niðurstöður sýna að varnaðarorð þeirra um málið eigi rétt á sér.

„Við erum nú bara fyrst og fremst sorgmædd yfir þessum niðurstöðum og við lítum alvarlegum augum á þetta,“ segir hann.

Erfðagreiningin fór fram síðla sumars árin 2015 og 2016. En Jón Helgi segist eiga von á að það haldi áfram að leka fiskur næstu ár með verulegum áhrifum á nærliggjandi laxastofna.

„Þetta styrkir okkur í þeirri trú að þetta verði afleiðingarnar ef stórar stöðvar eru settar hjá laxveiðiám.“

Niðurstöður matsins eru þó einnig að ásættanlegt sé að leyfa allt að 71.000 tonna framleiðslu af frjóum eldislaxi hér við land eða um 35 milljónir frjórra laxa.

„Það er ljóst að verði stofnar fyrir ítrekaðri erfðablöndun yfir ákveðið tímabil þá geta þeir glatast endanlega. Ég held að þessar niðurstöður sýni fyrst og fremst fram á að fara verði mjög varlega í að leyfa eldi á frjóum norskum laxi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×