Innlent

Óttast að námsmenn erlendis muni hrökklast úr námi

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
BHM skorar á LÍN að afturkalla skerðingu á framfærslulánum.
BHM skorar á LÍN að afturkalla skerðingu á framfærslulánum. vísir/valli
Bandalag háskólamanna skorar á stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna að afturkalla skerðingu á framfærslulánum til námsmanna erlendis. Hætta sé á að fjöldi námsmanna erlendis hrökklist frá námi vegna skerðingarinnar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem BHM sendi frá sér í dag. Þar segir að nýjar úthlutunarreglur LÍN takmarki möguleika námsfólks til að afla sér menntunar utan landsteinanna, en nýju reglurnar fela í sér allt að 20 prósent skerðingu á framfærslulánum til námsmanna erlendis á skólaárinu 2016-17.

„Frekari skerðing er boðuð á næsta skólaári. BHM tekur undir með Sambandi íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) sem hefur bent á að með nýju úthlutunarreglunum hafi fólk sem stundar nám erlendis orðið fyrir forsendubresti. Það hafi tekið ákvörðun um nám erlendis og gert áætlanir um það á grundvelli fyrri reglna en sjái nú fram á að forsendur þeirra séu brostnar,“ segir í yfirlýsingunni.

Þá segir að hætta sé að að fjöldi námsmanna hrökklist frá námi, sem yrði til mikils skaða fyrir íslenskt samfélag enda hafi sú fjölbreytta þekking sem námsmenn hafi í áranna rás aflað sér utan landsteinanna skilað því miklum ávinningi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×