Innlent

Óttaslegnir íbúar vígbúast í Móabarði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Á einni viku var tvisvar ráðist inn á heimili sömu konunnar í Móabarði og hún beitt alvarlegu kynferðislegu ofbeldi.
Á einni viku var tvisvar ráðist inn á heimili sömu konunnar í Móabarði og hún beitt alvarlegu kynferðislegu ofbeldi. vísir/vilhelm
Síðustu vikuna hafa tvær, að því virðist tilefnislausar, árásir verið gerðar á sömu konuna í Móabarði í Hafnarfirði. Fréttablaðið heyrði hljóðið í nokkrum nágrönnum konunnar en enginn vildi koma fram undir nafni enda fólk óttaslegið. Þeir eru undrandi yfir að ekki sé búið að yfirheyra alla í götunni. Til að mynda hafi ekki verið rætt við fólk sem býr í sama húsi og konan eða fólk í nærliggjandi húsum.

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar fer með rannsókn málsins og leitar að karlmanni sem grunaður er um brotin. Lýst hefur verið eftir honum í fjölmiðlum en ekki er vitað hver maðurinn er. Í fyrri árás virðist maðurinn hafa villt á sér heimildir. Hann sagðist vera frá Orkuveitunni og þóttist ætla að lesa á mæla. Síðari árásin var gerð tæpri viku síðar, í fyrsta skipti sem konan var ein heima frá fyrri árásinni en maðurinn hennar brá sér frá í hálftíma.

Einn nágranninn bendir á að það séu ekki margir staðir fyrir utan húsið til að liggja í leyni og njósna um konuna. Segir hann að hægast sé fyrir nágranna að fylgjast með og því ættu nágrannarnir að liggja undir grun. „Mér væri slétt sama þótt ég væri grunaður. Komið bara og talið við okkur,“ segir hann.

Mikil spenna ríkir í hverfinu og margir finna til óöryggis „Fólk er búið að gera varúðarráðstafanir. Menn eru að hlaða haglabyssurnar.“

Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að það sé verið að tala við fólk en vill ekki tjá sig frekar um yfirheyrslur lögreglunnar.

Við erum að vinna úr þeim fáu vísbendingum sem lögreglan hefur,“ segir hann en það eina sem lögreglan hefur í höndunum er takmörkuð lýsing á manninum frá fórnarlambinu sjálfu.

Aðspurður af hverju konan hafi ekki verið undir eftirliti eftir fyrstu árásina og hvort hún sé með vernd núna segir Árni gagnlaust að upplýsa um slíkt. „Við höfum gripið til ráðstafana sem ég get ekki farið út í að lýsa.“

En eruð þið bókstaflega að leita að manninum? Með öllu tiltæku liði? „Við erum að rannsaka gögn,“ svarar Árni.


Tengdar fréttir

Konan nýtur nú verndar

Grunur leikur á að sami maður hafi í tvígang ráðist á konu á heimili hennar í Móabarði í Hafnarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×