Innlent

Óttarr sá eini sem hefur skilað inn framboði til formanns

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Óttarr Proppé hefur verið alþingismaður frá árinu 2013.
Óttarr Proppé hefur verið alþingismaður frá árinu 2013. Vísir/ÞÞ
Óttarr Proppé er sá eini sem hefur skilað inn framboði til formanns flokksins. Guðlaug Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, sem orðuð hafði verið við embættið tók þá ákvörðun í vikunni að bjóða sig fram til stjórnarformanns.

„Ég hafði gefið upp að ég hygðist bjóða mig fram til forystu í flokknum og var þá að líta til þessara tveggja embætta. En ég hafði ekki ákveðið mig en gerði það nú á miðvikudag og skilaði þá inn formlegu framboði,“ útskýrir Guðlaug í samtali við Vísi.

Fjórir eru því í framboði til stjórnarformanns en það eru auk Guðlaugar Brynhildur S. Björnsdóttir, Matthías Freyr Matthíasson og Preben Pétursson.

Framboðsfrestur rennur ekki út fyrr en ársfundur flokksins hefst á morgun klukkan 11 en ólíklegt þykir að nokkur bjóði sig fram á móti Óttarri.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×