Innlent

Óttarr Proppé: „Þetta er snúið dæmi“

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Umræður hafa verið um að Óttarr Proppé segi af sér þingmennsku til að gegna embætti untanþingsráðherra.
Umræður hafa verið um að Óttarr Proppé segi af sér þingmennsku til að gegna embætti untanþingsráðherra. vísir/Stefán
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir umræður um að hann segi af sér þingmennsku til að gegna embætti utanþingsráðherra enn á byrjunarstigi. Flokkurinn telur að með þessu fái hann tækifæri til þess að styrkja sig því þannig geti allir fjórir þingmenn Bjartrar framtíðar sinnt störfum sínum á þingi.

„Það hefur rætt mikið síðustu árin hugmyndir um utanþingsráðherra og þingmenn sem verði ráðherrar sitji ekki á þingi .Þetta hefur verið mikil umræða í sambandi við mögulega stjórnarþátttöku Bjartrar framtíðar af því að við erum auðvitað bara fjögur á þinginu,“ sagði Óttarr í Bítinu í morgun.

Ekkert í stjórnskipan landsins heimilar þó að þingmaður taki sér tímabundið leyfi frá þingstörfum og kalli inn varamann á meðan ráðherraembætti er gegnt. Því þyrfti Óttarr að segja af sér og gæti ekki tekið sæti á þingi aftur nema að gengnum nýjum alþingiskosningum. 

Óttarr segir þessar hugmyndir nokkuð flóknar og óljósar, en farið verður yfir málið á stjórnarfundi Bjartrar framtíðar í kvöld.

„Hugmyndin er að þingflokkurinn sé allur á þinginu þó einhver sinni ráðherramennsku. Ráðherrar eru náttúrulega ekki allan daginn í þinginu. En eins og er þá gera reglur þingsins ekki ráð fyrir þessu, þannig að þetta er snúið dæmi,“ segir hann.

Stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar eru langt komnar, en formenn flokkanna munu kynna nýjan stjórnmála fyrir þingflokkum sínum í dag. Óttarr sagði í Bítinu að ný stjórn verði líklega kynnt á allra næstu dögum. 

Hlusta má á viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Ræða að Óttarr segi af sér þingmennsku

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins munu óska eftir ráðuneytum og nefndarformennsku við formann sinn í dag. Flokksráð Sjálfstæðisflokksins og stjórn Bjartrar framtíðar funda í kvöld og fara yfir stjórnarsáttmála nýrrar stjórnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×