Innlent

Óttarr og Bibbi líklega með Pollapönki til Danmerkur

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
MYND/INGIBJÖRG HÖGNA JÓNASDÓTTIR
„Við erum að fara að hittast í dag og ákveða framhaldið,“ segir Heiðar Örn Kristjánsson, söngvari og gítarleikari, hljómsveitarinnar Pollapönk sem sigraði með laginu, Enga fordóma, í Eurovision-keppninni á laugardaginn.

Engar ákvarðanir hafa verið teknar um það hvort Bibbi í Skálmöld og Óttarr Proppé tónlistar- og alþingismaður verði með þegar hljómsveitin tekur lagið í Eurovision í Danmörku í vor. Eins og fram kom á keppninni á laugardaginn áttu þeir sem komust kepptu í einvíginu að hafa atriðið eins og það kemur til með að vera í keppninni úti.

Heiðari þykir ekki ólíklegt að það nái til þess að þeir Óttarr og Bibbi verði með úti. „Það væri óneitanlega mjög gaman að hafa þá með enda algjörir snillingar á ferð.“

Jafnframt býst Heiðar við því að lagið verði flutt á bæði íslensku og ensku.

„Þetta var æðislegt og æðislega gaman,“ segir Heiðar um sigurinn og keppnina. „Við erum í skýjunum yfir því að fá tækifæri til að komast á stóra sviðið og koma þessum boðskap á framfæri.“ 


Tengdar fréttir

Pollarnir fá aðstoð frá Ham og Skálmöld

Hljómsveitin Pollapönk sem tekur þátt í Eurovision um helgina hefur fengið mikla reynslubolta til að aðstoða sig – þá Óttar Proppé úr Ham og Bibba úr Skálmöld.

Pollapönk fer til Danmerkur

Lagið Enga fordóma fór með sigur af hólmi í söngvakeppni sjónvarpsins í kvöld.

Barist um farseðilinn til Kaupmannahafnar

Það ræðst í kvöld hvert framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður í maí. Landsmenn sitja límdir við skjáinn og tjá skoðun sína á Twitter undir merkinu #12stig.

Pönk og fönk komust áfram

Lögin Enga fordóma og Þangað til ég dey voru kosin áfram í Söngvakeppni RÚV í gær.

Pollapönk á æfingu

Hljómsveitin Pollapönk undirbýr sig nú fyrir morgundaginn þegar þeir flytja framlag sitt Enga fordóma í undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins eins og sjá má í myndskeiðinu sem tekið var á búningaæfingu með liðsmönnunum sveitarinnar, þeim Heiðari Arnari Kristjánsssyni, Haraldi F. Gíslasyni, Arnari Gíslasyni og Guðna Finnssyni.

Baksviðs með Pollapönk

Meðlimir Pollapönk voru hæstánægðir með að komast áfram upp úr undanúrslitum söngvakeppni sjónvarpsins síðasta laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×