Innlent

Óttarr: „Vinnum saman, gerum vel, og verum góð“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra.
Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra. Vísir/Ernir
Óttarr Proppé, heilbrigðsráðherra og formaður Bjartrar framtíð varð tíðrætt um mikilvægi þess að vönduð vinnubrögð verði ástunduð á Alþingi á kjörtímabilinu. Þetta kom fram í ræðu hans í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld.

„Öll þurfum við að tileinka okkur nýja siði. Við þurfum að þróa áfram samvinnu þvert á flokka og auka samráð um allt í samfélaginu. Við verðum að leggja áherslu á vönduð vinnubrögð, gagnsæi og heiðarleika. Það er hvorki lúxus né hjóm. Þvert á móti er það alger nauðsyn,“ sagði Óttarr.

Lagði hann áherslu á að Björt framtíð myndi leggja mikla áherslu á heilbrigðismálin á komandi kjörtímabili. Sagði hann að áform nýrrar ríkisstjórnar væru að að tengja betur þjónustu heilsugæslu, sjúkrahúsa, heimaþjónustu og hjúkrunarheimila. Þá væri stefnt að því að tryggja betra aðgengi að sálfræðingum.

Sagði Óttarr að af hálfu Bjartrar framtíðar væri lögð áhersla á það að bæta samvinnu í stjórnmálum og að þessi hugsun endurspeglist í sáttmála ríkisstjórnarinnar.

„Fyrsta verk ríkisstjórnarinnar var að staðfesta siðareglur ráðherra. Til stendur að opna bókhald stjórnarráðsins. Þetta er raunveruleg ætlun okkar og ríkisstjórnarflokkarnir eru samstíga um að gera betur. Okkur er alvara og áherslan á bætt vinnubrögð er svo langt frá því að vera orðin tóm,“ sagði Óttarr.

Töluverðan tíma tók að mynda ríkisstjórn frá því að kosið var og sagði Óttarr að niðurstöður kosninganna í október hefðu verið skýr skilaboð um meiri samvinnu á Alþingi. Niðurstöðurnar hefðu neytt flokkanna til þess að hugsa út fyrir boxið.

„Mikið var það fallega gert af kjósendum þó það hafi kostað og eigi eftir að kosta okkur stjórnmálamönnunum alls konar vesen, óþægindi og uppbrot á venjum og hefðum. Það er hollt og það er got. Fyrir framtíðina. Hún er áfangastaðurinn og á hana verðum við að einblína. Verum óhrædd að breyta. Vinnum saman, gerum vel, og verum góð.“


Tengdar fréttir

Ásta Guðrún: Viðreisn og Björt framtíð vega salt við Sjálfstæðisflokkinn

Aldrei hefur fjórflokkurinn fengið jafn lítið fylgi og nú, aldrei hafa fleiri flokkar komist að og fleiri konur hafa ekki verið á þingi. Þetta var á meðal þess sem Ásta Guðrún Helgadóttir, þinmaður Pírata, sagði í upphafi ræðu sinnar á Alþingi þar sem nú fara fram umræður um stefnuræðu forsætisráðherra en umræðurnar má sjá í beinni útsendingu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×