Innlent

Óttar sagði stöðu heilbrigðismála góða „í stóra samhenginu“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Óttar Proppé, heilbrigðisráðherra og þingmaður Bjartrar framtíðar, ávarpar þingsal fyrr í kvöld.
Óttar Proppé, heilbrigðisráðherra og þingmaður Bjartrar framtíðar, ávarpar þingsal fyrr í kvöld. Vísir/Stefán
Óttar Proppé, heilbrigðisráðherra og þingmaður Bjartrar framtíðar, ræddi ríkisstjórnarsamstarfið og stöðu heilbrigðismála í ræðu sinni á Eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.  

Hann talaði um nýafstaðið þing Alþjóða heilbrigðismálaráðstefnunnar, WHO, sem hann sótti í fyrsta sinn sem heilbrigðisráðherra. Á þinginu bar Óttar bækur sínar í heilbrigðismálum saman við kollega sína, þar á meðal frá Indlandi, Norður-Kóreu og Lýðveldinu Kongó og sagði vandamál heilbrigðismála á Íslandi oft yfirstíganleg í stóra samhenginu.

„Því þótt við glímum við stórar og alvarlegar áskoranir hér á Íslandi, bæði í heilbrigðismálum, eins og í öðru, þá er ljóst að okkar staða er að mörgu leyti góð, vandamálin oft yfirstíganleg í stóra samhenginu og tiltöluleg samstaða eða að minnsta kosti friður um ansi mörg grundvallarmál. Eftir að hafa heyrt sjónarmið fulltrúa 190 ríkja varð mér enn og aftur ljóst að enginn er eyland í heilbrigðismálum, faraldrar virða ekki landamæri, það gera loftslagsmálin heldur alls ekki og í æ ríkari mæli gera efnahagsmál og aðrar hliðar mannlífsins það ekki heldur.“

Efling heilbrigðiskerfisins

Töluvert hefur borið á gagnrýni á heilbrigðiskerfið í ræðum annarra þingmanna á Eldhúsdegi í kvöld. Óttar sagði þennan málaflokk augljóslega brenna íslenskum almenning fyrir brjósti. Hann sagði aðra þætti heilbrigðiskerfisins ekki munu líða fyrir byggingu nýs landspítala.

„Heilbrigðismálin eru augljóslega sá málaflokkur sem íslenskur almenningur ber helst fyrir brjósti enda augljóst að þar er verk að vinna. Ég hef lagt áherlsu á að vinna heildstæða stefnu um heilbriðgisþjónustuna þvert á stofnanir og þjónustustig.

Áherslan á mönnun heilbrigðisstétta, eflingu heilsugæslunar, þróun fjarheilbrigðisþjónustu og geðheilbrigðismálin eru mikilvæg. Lýðheilsa fléttast inn í ólík málefni, hún kemur við skipulagsmál, matvælaframleiðslu, umhverfismál, almenningssamgöngur, skóla osfrv.

En það er ekki á annað hallað þó að bygging nýs landspítala sé sett á oddinn. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að ljúka byggingu fyrsta áfanga á næstu árum. Það verður eitthvað mesta grettistak í íslenskum heilbrgiðismálum í marga áratugi. Það er verk að vinna og gott að vita af breiðum stuðningi við þessa uppbyggingu,“ sagði Óttar.

Hlutverk þingmanna að þjónusta almenning

Þá sagði Óttar hlutverk þingmanna bæði ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu fyrst og fremst vera starf í þjónustu almennings.

„Við kjörnir fulltrúar erum í þjónustustarfi fyrir almenning. Vissulega erum við kosin til að fylgja ákveðinni stefnu, til að framfylgja okkar áherslum. En gleymum því aldrei að okkar hlutverk er að þjóna almannahagsmunum, líka þeirra sem kusu okkur ekki. Þetta á bæði við um okkur sem stöndum að ríkisstjórninni og þingmenn annara flokka.“


Tengdar fréttir

Vill Costco-þrýstinginn á Alþingi

Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, ræddi samstöðu neytenda í kringum Costco og verðsamanburð á samkeppnisaðilum, í ræðu sinni á Eldhúsdagsumræðum í Alþingi í kvöld. Hún kallaði eftir því að þrýstingnum, sem neytendur setja á verslanir, yrði beitt á þingmenn.

Bein útsending: Eldhúsdagur á Alþingi

Eldhúsdagur er á Alþingi í kvöld þegar almennar stjórnmálaumræður fara fram. Þingfundur hefst klukkan 19:35 og skiptast umræðurnar í þrjár umferðir.

Sagði Viðreisn berjast gegn sérhagsmunum allra, líka vina sinna

Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra og formaður Viðreisnar, lagði áherslu á mikilvægi alþjóðasamstarfs í ræðu sinni á eldhúsdegi á Alþingi í kvöld. Hann sagði meðal annars að þjóðin hefði á árum áður verið heppin að hafa framsækna leiðtoga í stjórnmálum sem hefðu þorað að leiða Íslendinga til þátttöku í alþjóðasamstarfi.

Sigurður Ingi gagnrýndi „stefnuleysi“ ríkisstjórnarinnar

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, kallaði eftir svörum við spurningum sínum um stefnu ríkisstjórnarinnar í Eldhúsdagsumræðum í kvöld. Hann sagði ríkisstjórnina stefnulausa og ríkisstjórnarflokkana Viðreisn og Bjarta framtíð enn fremur máttlausa í samstarfi sínu við Sjálfstæðisflokkinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×