Körfubolti

Ótrúlegur lokakafli í leik Stjörnunnar og Njarðvíkur

Það var svakaleg dramatík í leik Stjörnunnar og Njarðvíkur í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í gær.

Stjarnan var með tveggja stiga forskot, 96-94, og með boltann þegar níu sekúndur voru eftir.

Þá gerði Logi Gunnarsson sér lítið fyrir og stal boltanum. Hann óð í átt að körfu Stjörnunnar og gerði sig líklegan til þess að jafna leikinn og senda hann í framlengingu.

Þá birtist Tómas Þórður Hilmarsson og honum tókst á magnaðan hátt að verja skot Loga. Þessi frábæri varnarleikur skilaði Stjörnunni oddaleik í rimmu liðanna.

Lokakafla leiksins má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×