Fótbolti

Ótrúlegur dagur fyrir Viðar sem var líka kosinn sá besti í Ísrael

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson.
Viðar Örn Kjartansson. vísir/afp
Föstudagurinn 17. mars er ótrúlegur dagur fyrir íslenska landsliðsmanninn Viðar Örn Kjartansson en það hefur verið mikið fjaðrafok í kringum Selfyssinginn í dag eftir að fréttist af því að hann hafi komið til móts við landsliðið í nóvember síðastliðinn undir áhrifum áfengis.

Viðar Örn Kjartansson var valinn í dag í íslenska landsliðshópinn sem mætir Kósóvo eftir viku. Það vantar marga framherja í liðið og Viðar Örn er heitasti framherji liðsins enda búinn að raða inn mörkum í ísraelsku deildinni.

Viðar Örn tjáði sig um málið í kvöld þar sem hann baðst afsökunar á framferði sínum og viðurkenndi að hann að hann hafi verið barnalegur og gert mistök. Hann segist þó hafa verið löngu hættur að drekka áður en hann mætti til móts við landsliðið.

Það voru hinsvegar líka mjög góðir hlutir að gerast hjá Viðar í dag auk þess að vera valinn í íslenska landsliðshópinn.

 

Viðar hefur farið á kostum í ísraelsku deildinni og gott dæmi um það er að lesendur One í Ísrael hafa valið íslenska landsliðsmanninn besta leikmann deildarkeppninnar.

70 þúsund manns tóku þátt í kosningunni og fékk Viðar Örn 27 þúsund atkvæði eða um 39 prósent. Viðar hafði betur í baráttunni við Ísraelsmanninn Itay Shechter sem spilar með Beitar Jerusalem.

Anthony Nwakaeme hjá Hapoel Be'er Sheva varð þriðji í kjörinu og fjórði var liðsfélagi hans Maor Buzaglo.

Viðar Örn Kjartansson skoraði 15 mörk í 24 leikjum í deildarkeppninni og er markahæsti leikmaður ísraelsku deildarinnar. Anthony Nwakaeme var næstmarkahæstur með ellefu mörk þannig að Viðar er með fjögurra marka forskot á hann.

Viðar Örn skoraði ekki í síðustu tveimur deildarleikjunum sínum en hann hafði fram að því skorað 9 mörk í 8 leikjum þar á undan.


Tengdar fréttir

Sjáðu blaðamannafund KSÍ

Landsliðshópur Íslands fyrir leikinn gegn Kósovó í undankeppni HM 24. mars var tilkynntur á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag.

Íslenskum landsliðsmönnum neitað um bjór í Króatíu

Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knattspyrnu, var spurður út í það á blaðamannafundi landsliðsins í dag hvort leikmenn hefðu verið gripnir við áfengisneyslu á hóteli í landsliðsverkefni á síðasta ári.

Mörg ný andlit í landsliðshópi Heimis

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag landsliðshóp sinn fyrir leikinn gegn Kósóvó í undankeppni HM. Sá leikur fer fram 24. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×