Erlent

Ótrúlegt myndband af árekstri dádýrs og hjólreiðamanns

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hjólreiðakappi í Kaliforníu slapp með skrekkinn þegar dádýr stökk í veg fyrir hann nærri Golden Gate brúnni við San Francisco liðna helgi. Hjólreiðakappinn, Silas Patlove, var hjólandi eftir Alexander Avenue nærri bænum Sausalito þegar dádýrið birtist skyndilega.

Patlove var með myndavél á hjólinu og hefur nú komið myndbandi af atvikinu á YouTube. Patlove segist í samtali við CBS hafa lent á baki sínu og fengið vægan heilahristing og minnisleysi til skamms tíma. Hann telur ljóst að ástæða þess að hann slapp án heilaskaða sé sú að hann var með hjálmp.

Ekki liggur fyrir hvernig fór fyrir dádýrinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×