Menning

Óþelló boðin þátttaka á einni stærstu leiklistarhátíð heims

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Leikhópurinn á æfingu. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir og Ingvar E. Sigurðsson fer með titilhlutverkið.
Leikhópurinn á æfingu. Gísli Örn Garðarsson leikstýrir og Ingvar E. Sigurðsson fer með titilhlutverkið. Vísir/Eyþór
Óþelló í uppsetningu Þjóðleikhússins og Vesturports, sem frumsýnd var annan í jólum, hefur verið valin til þátttöku í stærstu leiklistarhátíð Suður- Ameríku í Mars 2018 í Bogotá í Kólumbíu.

Gísli Örn Garðarsson, einn forsprakka Vesturports, er að vonum ánægður með boðið. „Þetta er ein stærsta leiklistarhátíð í heimi, hún er mjög stór að umfangi og borgin er alveg undirlögð á meðan hátíðinni stendur svo við erum upp með okkur,“ segir hann í samtali við Vísi.

Hátíðin heitir Festival Iberoamericano de teatro de Bogotá og er haldin á tveggja ára fresti. Þjóðleikhúsið og Vesturport-hópurinn mun halda til Kólumbíu vorið 2018.

Að sögn Gísla er hátíðin hefðbundin leiklistarhátíð og mikið er lagt upp úr að fá stór og metnaðarfull leikhús til þátttöku. „Það eru þekkt nöfn þarna úr Evrópska leikhúsheiminum frá Þýsklandi, Englandi, Frakklandi og víðar og það er ánægjulegt að vera í þeim hópi,“ segir Gísli. Við verðum kynnt sem ein af aðalsýningum hátíðarinnar árið 2018.

Vesturport hefur áður tekið þátt í leiklistarhátíðinni í Bogotá en leiksýningin Hamskiptin, sem byggð er á skáldsögu Franz Kafka, var sett þar upp árið 2010. „Þetta var mögnuð upplifun,“ segir Gísli Örn og segist hlakka mikið til að upplifa ævintýrið á nýjan leik.

Gísli Örn Garðarsson leikstýrir Óþelló.
Ólík viðbrögð við Óþelló

Óþelló var frumsýnd annan í jólum í Þjóðleikhúsinu. Gísli segir að hann eigi von á allskyns viðbrögðum enda er það í eðli þess að vinna við fagið.

„Við erum að fara okkar leið með verkið, blanda saman list, Óþelló og uppstokkun í hlutverkunum. Það fellur líklega ekki eins og flís við alla rassa. En það er hluti af þessu," segir Gísli.

Hann tekur fram að uppfærsla Vesturports á Rómeó og Júlíu, sem sló eftirminnilega í gegn á sínum tíma, hafi verið umdeild í upphafi. „Og núna erum við að vinna með Óþelló. Það eru margar leiðir í boði. Þetta er okkar leið.“

„En ég held ég hafi aldrei gert sýningu sem hafi ekki fengið mjög ólík viðbrögð. Svo virðist þetta finna sér farveg þegar fram líður," segir Gísli.

Mætum með opið hjarta

Gísli segir að það verði forvitnilegt að komast að því hver viðbrögð Kólumbíumanna og annarra gesta hátíðarinnar verði í garð Óþelló. „Við mætum bara með opið hjarta,“ segir hann og ítrekar að forsvarsmenn hátíðarinnar séu vissulega nú þegar búnir að sjá upptöku af verkinu.

„Þeir voru búnir að lýsa yfir áhuga á okkur og svo þegar þeir sáu upptöku af verkinu fylgdi formlegt boð í kjölfarið. Þannig að þeir virðast vera spenntir fyrir sýningunni og við erum spennt fyrir að mæta,“ segir Gísli að lokum.






Tengdar fréttir

Frumsýna Óþelló tvisvar

Breytt er út af hefðinni í Þjóðleikhúsinu þessi jólin, en þar hefur jólasýningin í mörg ár verið frumsýnd á annan í jólum.

Fljúgandi Desdemóna

Aldís Amah Hamilton er nýútskrifuð leikkona en hún fer með aðalkvenhlutverkið í sýningunni Óþelló. Aldís útskrifaðist í júní síðastliðnum og verður þetta hennar fyrsta hlutverk í leikhúsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×