Innlent

Óþekktur gleðigjafi: „Þú ert æði og í Þorláksheaven“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dæmi um skilaboð sem íbúar Þorlákshafnar hafa orðið varir við.
Dæmi um skilaboð sem íbúar Þorlákshafnar hafa orðið varir við. Mynd af vef Hafnarfrétta
Íbúar í Þorlákshöfn hafa bæði í dag og í gær orðið varir við miða sem límdir hafa verið víðs vegar um bæinn. Á miðana hefur einhver óþekktur aðili skrifað jákvæð og skemmtileg skilaboð.

Í umfjöllun Hafnarfrétta kemur fram að enn sé óljóst hver þarna sé að verki. Hins vegar hljóti allir að geta verið sammála um að um skemmtilegt uppátæki sé að ræða.

„Eigðu góðan dag rúsína“, „Þú ert frábær í alla staði“, „Þú ert æði og í Þorláksheaven!“ eru á meðal skilaboða sem íbúar hafa rekið sig á og án vafa haft gaman af.

Uppfært klukkan 13:35

Í frétt á vef Hafnarfrétta kemur fram að fimm stúlkur á táningsaldri hafi ákveðið að gleðja íbúa bæjarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×