Tíska og hönnun

Óþekkjanleg fyrir Chanel

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Kendall Jenner var nánast óþekkjanleg með frumlega hárgreiðslu fyrir Chanel.
Kendall Jenner var nánast óþekkjanleg með frumlega hárgreiðslu fyrir Chanel.
Fyrirsætan Kendall Jenner lætur ekki sitt eftir liggja á hátískuvikunni í París sem fer fram þessa dagana en hún vakti athygli á sýningu Chanel í gær.

Jenner var eiginlega óþekkjanleg í fatnaði eftir Karl Lagerfeld, með hárið blásið í hanakamb framaná höfðinu. Þungur kjóll úr Tweed með berum öxlum var paraður saman við sandala og Chanel tösku. 

Jenner, sem er yngri systir Kardashian-systranna og skaust fram á sjónarsviðið í raunveruleikaþáttunum Keeping Up with the Kardashians, er að gera það gott sem fyrirsæta og eftirsótt hjá þekktustu hönnuðum heims. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×