Ótal tækifæri

Fréttablaðið Fastir pennar 23. febrúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Sjö fyrirtæki sem eru beint eða óbeint, að hluta eða í heild í eigu Landsbankans verða skráð í Kauphöll Íslands á næstu misserum, eins og Fréttablaðið sagði frá í gær. Þá hefur Steinþór Pálsson, forstjóri bankans, sagt að hugsanlegt sé að bankinn sjálfur verði skráður á markað á þessu ári og þá væntanlega minnihluti í honum seldur.

Landsbankinn er í meirihlutaeigu ríkisins og því óhætt að tala um að framundan sé mesta einkavæðing Íslandssögunnar, en um leið hægt að fullyrða að með því að ríkið fékk bankann í fangið og hann fyrirtækin hafi átt sér stað einhver mesta ríkisvæðing eða þjóðnýting Íslandssögunnar.
Það er af ýmsum ástæðum fagnaðarefni að til stendur að skrá þessi fyrirtæki á hlutabréfamarkað og í því geta falizt ótal tækifæri.

Í fyrsta lagi er þannig undið ofan af þeirri afar óheilbrigðu stöðu að fjöldi stórra fyrirtækja á samkeppnismarkaði hafi verið í eigu bankanna (og í þessu tilviki í óbeinni eigu ríkisins). Það hefur skekkt samkeppnisstöðuna á viðkomandi mörkuðum og sett keppinautana í klemmu. Of hægt hefur gengið að renna fyrirtækjum úr mjúkum faðmi bankanna.

Í öðru lagi skiptir miklu máli að fyrirtækin séu skráð á hlutabréfamarkað til þess að sala þeirra sé gegnsæ og menn geti forðazt tortryggni og ásakanir um einkavinavæðingu eða spillingu.

Í þriðja lagi mun skráning þessara félaga í Kauphöllina efla hlutabréfamarkaðinn, sem þarf nauðsynlega að ná sér á strik á nýjan leik eftir hrun. Virkur hlutabréfamarkaður er nauðsynlegur til að bæta aðgang fyrirtækja að fé og fjölga möguleikum almennings og fagfjárfesta til að ávaxta fé sitt. Alltof mikið af peningum liggur nú í bankainnistæðum á lágum vöxtum eða í ríkisskuldabréfum og gerir lítið gagn í atvinnulífinu.

Í fjórða lagi fá lífeyrissjóðirnir með eflingu hlutabréfamarkaðarins ný tækifæri til að ávaxta fé sjóðsfélaga og dreifa áhættu sinni. En þeir fá líka tækifæri til að beita sér í þágu þroska og siðvæðingar markaðarins; tækifæri sem þeir létu sér úr greipum ganga fyrir hrun. Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar hvatti forsvarsmenn lífeyrissjóðanna á síðasta ársþingi landssamtaka þeirra til að vera virkari á hlutabréfamarkaðnum og aðhaldssamari gagnvart félögum sem þeir fjárfesta í; ganga til dæmis fastar eftir því að stjórnarhættir fyrirtækja séu í lagi og ekki tekin óhófleg áhætta.

Með því að grípa þetta tækifæri myndu lífeyrissjóðirnir stuðla að heilbrigðum hlutabréfamarkaði, þar sem mistök fortíðarinnar yrðu ekki endurtekin, og fengju um leið færi á að bregðast við hluta af þeirri gagnrýni, sem að þeim var beint í úttektarskýrslunni á dögunum.

Endurreisn hlutabréfamarkaðarins hefur farið ágætlega af stað. Hagar, sem voru fyrsta fyrirtækið sem skráð var í Kauphöllina eftir hrun, hafa hækkað í verði um fimmtung og fjárfestar þannig fengið ágæta ávöxtun nú þegar. Það skiptir hins vegar máli að stilla væntingum í hóf og gæta þess að hjarðhegðun útrásartímans, þar sem jafnvel afleitar fréttir af fyrirtækjum virtust ekki geta komið í veg fyrir að þau héldu áfram að hækka, verði ekki endurtekin.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Ótal tækifæri