Ótal kostir við að læra erlendis 8. ágúst 2016 13:15 Það gerir flestum afar gott að stunda nám erlendis.
Árlega heldur KILROY kynningu á námi erlendis. Að þessu sinni verður hún haldin í Bíó Paradís þriðjudaginn 30. ágúst en að sögn forsvarsmanna KILROY eru ótal kostir við að læra erlendis. Það veitir ógleymanlega reynslu, stækkar tengslanetið og gefur nemandanum kost á að kynnast nýrri menningu. Á hverju ári stendur KILROY fyrir háskólakynningu þar sem gestum gefst tækifæri til að hitta fulltrúa frá fjölda erlendra háskóla og kynna sér það fjölbreytta nám sem skólarnir bjóða upp á. Í ár mæta fulltrúar frá ellefu háskólum. Þeir koma frá Ástralíu, Bandaríkjunum, Englandi og Kanada ásamt því að Trade & Investment Queensland verður með kynningu á því hvernig það er að vera námsmaður í Ástralíu. Þar að auki verður ráðgjafi frá KILROY á staðnum til þess að svara spurningum um allt sem viðkemur námi erlendis og starfsnámi í USA og Kína.Hinrik Örn Hinriksson veitir áhugasömum ráðgjöf um nám erlendis.„Þetta er einstakt tækifæri til þess að kynna sér framboðið og afla sér upplýsinga um umsóknarferlið beint frá sérfræðingum og starfsfólki háskólanna,“ segir Hinrik Örn Hinriksson ráðgjafi um nám erlendis hjá KILROY en hann hefur stundað háskólanám á Íslandi, í Frakklandi og í Japan. Í Japan var hann við nám í Ritsumeikan Asia Pacific University en það er einmitt einn þeirra háskóla sem KILROY starfar með. Hákon segir þá sem hafa nýtt sér þjónustu KILROY síðustu ár helst hafa valið Ástralíu, Bandaríkin og England en viðskiptafræði, upplýsinga- og tölvunarfræði og leiklist eru vinsæl fög. „Þá höfum við sent fólk í afbrotafræði, dýralækningar, söngleikjanám, fjölmiðlafræði og margt fleira.“ Hinrik býður alla velkomna á kynninguna í Bíó Paradís milli 17 og 20, 30. ágúst. Skráning fer fram á kilroy.isHvernig getur KILROY aðstoðað þig við að komast í nám erlendis?• Við veitum persónulega og fría ráðgjöf um allt sem tengist umsóknarferlinu og vali á skóla • Aðstoðum þig við að fylla út og senda umsókn á viðkomandi skóla • Hjálpum við staðfestingu skjala • Setjum þig í samband við nemendur sem eru að fara eða eru nú þegar í sama háskóla • Bókum fyrir þig hagstætt flug til viðkomandi lands á sérstökum námsmannamiðum • Aðstoðum þig við umsókn námsmannaleyfis (vegabréfsáritun/visa) KILROY er í samstarfi við háskóla í Englandi, Ástralíu, Bandaríkjunum, Dubai, Nýja Sjálandi, Kanada, Singapore, Víetnam, Japan, Indónesíu og Kína. KILROY getur aðstoðað þig við að komast í grunnnám, framhaldsnám, diplómu eða skiptinám. Við störfum einnig með háskólum í Bandaríkjunum sem bjóða upp á eins árs háskólabrú fyrir þá sem hafa ekki lokið stúdentsprófi en vilja komast út í háskólanám. Í Bíó Paradís verða fulltrúar frá eftirfarandi háskólum: Ástralíu• Griffith University • Monash University • University of the Sunshine Coast • University of New South Wales • TAFE QueenslandBandaríkjunum• California State University San Marcos • California State University Monterey Bay • Michigan State University • Foothill & De Anza CollegesKanada• Thompson Rivers UniversityEngland • Bournemouth University5 góðar ástæður fyrir að læra erlendis: 1. Lítur vel út á ferliskránni 2. Þú öðlast ógleymanlega reynslu 3. Stækkar tengslanetið og eignast vini víðsvegar að úr heiminum 4. Þú þroskast, þróar samskiptahæfileikana og bætir tungumálakunnáttuna 5. Einstakt tækifæri til að kynnast nýrri menningu frá eigin hendiÞað er ekki amalegt að gera verkefnin á ströndinni.
Mest lesið Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans Lífið Arkitekt dýrasta húss Íslandssögunnar selur í Fossvogi Lífið „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Tónlist Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Lífið Féllust í faðma á tilfinningaríkri stundu Lífið Valgerður selur íbúðina í Vesturbænum Lífið Myndavél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Mesta hættan í unglingaherberginu Lífið Fleiri fréttir Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Match Attax Extra viðburður í Fótboltalandi á laugardaginn! Sjá meira