Golf

Óstöðvandi Dustin Johnson fyrstur til að vinna öll heimsmótin

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dustin Johnson með sigurlaunin í nótt.
Dustin Johnson með sigurlaunin í nótt. vísir/getty
Dustin Johnson, efsti maður heimslistans í golfi, sýndi og sannaði enn eina ferðina í nótt að hann er besti kylfingur heims um þessar mundir.

Johnson fagnaði sigri á heimsmótinu í holukeppni með því að leggja Spánverjann Jon Rahn í úrslitum en sigurinn vannst á síðustu holunni. Sá bandaríski var með fimm vinninga forskot eftir átta holur en Rahm, 22 ára gamall Spánverji, átti fína endurkomu.

Þetta er þriðji sigur Johnson á PGA-mótaröðinni í röð en hann varð jafnframt í nótt fyrsti maðurinn í sögunni til að vinna öll fjögur heimsmótin. Hann er búinn að vera sjóðheitur síðustu mánuði.

„Það hvetur mig áfram að vera efstur á heimslistanum. Ég legg meira á mig til að verða betri. Ég get enn bætt mig þannig ég held bara áfram,“ sagði Johnson eftir sigurinn.

Dustin Johnson komst með sigrinum á stall með Tiger Woods en þeir eru einu mennirnir sem hafa unnið fjögur eða fleiri heimsmót. Tiger hefur reyndar unnið 18 slík og er langefstur á listanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×