Innlent

Össur enn sömu skoðunar varðandi olíuleit

Heimir Már Pétursson skrifar

Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ekki heppilegt fyrir framtíðina að landsfundur Samfylkingarinnar hafi samþykkt að hætt skuli við olíuleit og vinnslu á Drekasvæðinu. Hann verði hins vegar að sætta sig við að hafa lent í minnihluta í málinu á landsfundinum.

Á landsfundi Samfylkingarinnar um síðustu helgi kúventi flokkurinn stefnu sinni varðandi olíuleit og vinnslu á Drekasvæðinu og vill nú samkvæmt landsfundarsamþykkt hætta leitinni.

„Ég tel að það sé ekki heppilegt fyrir framtíðina þó að þróunin hafi orðið þannig að það sé nú líklegt að það seinki allt. En hins vegar er það þannig að í Samfylkingunni getur maður verið í minnihluta. Ég er þar í minnihluta og hef mína skoðun óbreytta. En sætti mig alveg við að það er önnur stefna uppi,“ segir Össur.

Össur ásamt fleiri ráðherrum og þingmönnum Samfylkingarinnar fögnuðu því á sínum tíma að olíuleit yrði hafin og sáu fyrir sér alls kyns tækifæri í þessum efnum m.a. í þjónustu við olíuleitina á norður og austurlandi. Össur segist alltaf hafa lagt áherslu á að olía væri allt of mikilvægt efni til að brenna og ætti að nota til annarra hluta en sem eldsneyti.

Hann hafi skilning á varnaðarorðum vegna loftslagsáhrifa en menn yrðu þá að vera samkvæmir sjálfum sér.

„Ég teldi þá t.d. fullkomlega lógískt fyrir þá sem hafa þessa skoðun að banna t.d. innflutning á eldsneyti. Sumt af því eldsneyti sem menn eru að flytja inn er unnið af Rússum,  jafnvel Norðmönnum miklu norðar heldur en þessi svæði sem eru innan okkar efnahagslögsögu,“ segir Össur.

Hann hafi oft orðið undir og sem lýðræðissinni sætti hann sig við það.

Össur efast um að þetta hafi áhrif á fylgi flokksins í næstu kosningum. Nýting olíu frá Drekasvæðinu sé fjarlægari en áður vegna þróunar á olíumarkaði.  Önnur og stærri mál verði á dagskrá fyrir næstu kosningar. Hins vegar megi leysa olíumálin með örðum hætti en innan stofnana stjórnmálaflokkanna.

„Ég held að þetta alveg eins og fiskveiðistjórnunarkerfið og ESB séu dæmi um mál sem eigi að leysa í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Össur Skarphéðinsson.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×