Innlent

Össur: „Enginn munur á Pírötum og Samfylkingu“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar.
Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm
Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að Píratar og Samfylkingin gætu vel unnið saman í ríkisstjórn. Sjálfur sér hann engan mun á Pírötum og Samfylkingunni.

„Það er enginn munur á Pírötum og Samfylkingu eða ég þekki hann ekki. Hver er sá munur? Ef þið eruð að tala um afstöðu Birgittu Jónsdóttur um að við skulum hafa örsutt kjörtímabil, níu mánuði, og kjósa þá um stjórnarskrána þá er það þannig að ég tel það óraunhæft. Ég tel að ef menn setja svona dagsetningar þá verða þær að skotspæni og stjórnarandstaðan nýja mun gera sér far um að brjóta hana niður,“ sagði Össur í samtali við þá Frosta Logason og Mána Pétursson í Harmageddon á X-inu í dag.

Össur benti á að innan raða Pírata væru menn ekki endilega mikið að fagna hugmyndum um níu mánaða kjörtímabil en hugmyndin er þá sú að samþykkja nýja stjórnarskrá á kjörtímabilinu og boða til þingkosninga í kjölfarið. Össur er þó alveg sammála því að það þurfi að breyta stjórnarskránni.

„Við skulum segja að það tækist að klára það mál í þokkalegum friði þannig að menn fengju að segja sínar skoðanir. Þegar því er lokið þá hef ég ekkert á móti því að kjörtímabilið yrði stytt og gengið til kosninga.“

Viðtalið við Össur má heyra í heild sinni hér að neðan en í því var farið yfir víðan völl. Bar meðal annars formannsskiptin í Samfylkingunni á góma sem og frammistaða Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra.


Tengdar fréttir

Skiptar skoðanir um stutt kjörtímabil

Formenn VG og Samfylkingar hugnast ekki stutt kjörtímabil líkt og þingflokksformaður Pírata hefur stungið upp á. Formenn Bjartrar Framtíðar og Viðreisnar útiloka það ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×