LAUGARDAGUR 25. MAÍ NÝJAST 00:01

Óttuðust sprengju um borð í flugvél

FRÉTTIR

Öskur setti Tiger úr jafnvægi | Eins höggs forskot fyrir lokahringinn

Vísir Golf 25. mars 2012 09:00
Tiger slær úr glompu á Bay Hill vellinum.
Tiger slær úr glompu á Bay Hill vellinum. NORDIC PHOTOS / GETTY IMAGES
Tiger Woods er í kjörstöðu fyrir lokahringinn á Arnold Palmer boðsmótinu í Orlando sem leikinn verður í dag. Tiger, sem lék hringinn í gær á einu höggi undir pari, hefur eins höggs forskot á Norður-Írann Graeme McDowell.

Tiger er samanlagt á ellefu höggum undir pari og er í fyrsta sinn í 30 mánuði í forystusætinu fyrir lokahringinn á PGA-móti. Tölfræðin er svo sannarlega hliðholl Tiger. Hann hefur unnið 37 af 39 PGA-mótum þar sem hann hefur verið efstur fyrir lokadaginn að því er AP-fréttastofan greinir frá.

Enginn skildi afskrifa Graeme McDowell sem spilaði einnig á einu höggi undir pari. Síðast þegar McDowell og Tiger voru saman í holli á lokahring á golfmóti vann McDowell upp fjögurra högga forskot Tigers og vann sigur í bráðabana. Það var á Chevron áskorandamótinu í árslok 2010.

Öskur og yfirlið

Forysta Tiger hefði getað verið mun betri ef ekki hefði verið fyrir stórskrýtið upphafshögg hans á 15. holu. Tiger, sem virkar í fantaformi, setti boltann langt út fyrir mörk vallarins og kepptust golfáhugamenn við að gera grín að skotinu.

Síðar um daginn kom í ljós að móðir sem var meðal áhorfenda á vellinum hafði öskrað í miðri sveiflu Tigers vegna þess að liðið hafði yfir son hennar.

„Við erum enn að komast til botns í málinu. Það leið víst yfir 18 ára strák sem féll til jarðar og móðir hans öskraði. Það vildi svo til að það var í miðri sveiflunni minni. Ég reyndi að hætta við en það var of seint. Ég hægði á kylfunni og boltinn lenti út fyrir mörk vallarins," sagði Tiger um atvikið að því er fram kemur á fréttavef Yahoo.

Myndband af atvikinu má sjá með því að smella hér.

Ernie Els eygir möguleika á sæti á Masters

Tiger deildi forystunni að loknum 36 holum með Suður-Kóreubúanum Charlie Wie. Wie fataðist flugið í gær, spilaði á fjórum höggum yfir pari og er á sex undir samanlagt. Þá átti Jason Dufner, sem leiddi ásamt Tiger eftir fyrsta hringinn, afleitan dag og spilaði á fimm yfir pari.

Suður-Afríkubúinn Ernie Els minnti á sig með frábærum hring. Hann spilaði á fimm höggum undir pari og er í þriðja sætinu ásamt Ian Poulter á átta undir pari samanlagt.

Els, sem er í 62. sæti heimslistans, þarf að ná góðum árangri til að tryggja sér þátttökurétt á Masters-mótinu aðra helgi. Fimmtíu efstu sætin á heimslistanum gefa þátttökurétt en Els þarf líklega að minnsta kosti að hafna í þriðja sæti mótsins og jafnvel gera betur en það.

Hér má sjá stöðuna í mótinu.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Golf 24. maí 2013 19:06

Axel og Guðrún leiða á Garðavelli

Fyrsta hring á Egils Gull-mótinu á Eimskipsmótaröðinni er lokið en mótið fer fram á Garðavelli. Meira
Golf 24. maí 2013 15:57

Axel byrjar vel á Garðavelli

Axel Bóasson úr Keili er efstur á Egils Gull golfmótinu á Garðavelli og lék hann fyrsta hringinn í mótinu á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Þetta er fyrsta stigamótið á Eimskipsmótaröðinni. Meira
Golf 23. maí 2013 11:15

Fín bæting á milli daga

Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir spilaði annan hringinn í landsúrslitum NCAA í gær á þremur höggum yfir pari. Hún er samanlagt á tíu höggum yfir pari þegar keppni er hálfnuð. Meira
Golf 23. maí 2013 06:30

Ekkert gefins á Korpunni

Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í sístækkandi hópi ungra og efnilegra afrekskylfinga sem Ísland hefur eignast. Hann og bestu kylfingar landsins verða í eldlínunni á Eimskipsmótaröðinni í sumar. Meira
Golf 22. maí 2013 23:15

Garcia vill bjóða Tiger upp á djúpsteiktan kjúkling

Kylfingurinn Sergio Garcia er miður sín eftir að hafa látið umdeild ummæli falla um Tiger Woods fyrr í vikunni. Meira
Golf 21. maí 2013 23:00

Tiger ætlar ekki að hringja í Garcia

Það andar köldu á milli kylfinganna Tiger Woods og Sergio Garcia þessa dagana. Á það rætur að rekja til atviks á Players-meistaramótinu á dögunum. Meira
Golf 21. maí 2013 16:45

Bannað að styðja pútter við líkamann

Alþjóðagolfsambandið hefur staðfest að frá og með 1. janúar 2016 verði bannað að nota ákveðna tegund af löngum pútterum. Meira
Golf 21. maí 2013 10:10

Birgir Leifur tapaði í bráðabana

Birgir Leifur Hafþórsson komst nálægt því að vinna sér þátttökurétt á móti í Evrópumótaröðinni sem fer fram í Svíþjóð í lok mánaðarins. Meira
Golf 21. maí 2013 07:30

Frá gassprengingu til Georgíu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur í dag leik í landsúrslitum bandaríska háskólagolfsins NCAA í Georgíufylki. Hún er sjötti kylfingurinn í sögu Wake Forest-háskólans í Norður-Karólínufylki sem kemst þ... Meira
Golf 20. maí 2013 21:15

Birgir Leifur nálægt sæti í móti á Evrópumótaröðinni

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, tók þátt í úrtökumóti fyrir Nordea Masters mótið sem fram fer á Evrópumótaröðinni um næstu mánaðamót. Um 100 kylfingar kepptu ... Meira
Golf 20. maí 2013 19:49

Gunnhildur fagnaði sigri eftir bráðabana í Þorlákshöfn

Í dag lauk fyrsta móti sumarsins á Íslandsbankamótaröð unglinga í golfi sem fram fór á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. Leikið var í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum. Meira
Golf 20. maí 2013 16:04

Óðinn Þór sigraði í Þorlákshöfn eftir frábæran hring

Keppni á Íslandsbankamótaröð unglinga í golfi er í fullum gangi á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. Leikið er í þremur aldursflokkum hjá báðum kynjum og í morgun léku tveir aldursflokkar hjá strákunum. Meira
Golf 20. maí 2013 13:24

Tók víti inni á klósetti

Belginn Nicolas Colsaerts lenti í heldur betur óvenjulegu atviki þegar hann var við keppni á Volvo Match Play mótinu á evrópsku mótaröðinni í golfi. Í leik sínum gegn Norður-Íranum Graeme McDowell þá ... Meira
Golf 19. maí 2013 22:45

Henti áritaðri mynd af sér og Tiger Woods í ruslið

Kylfingurinn Rocco Mediate greindi frá því í sjónvarpsþætti David Feherty á Golf Channel að hann hefði fleygt ljósmynd af sér og Tiger Woods, með áritun Woods, í ruslið. Meira
Golf 19. maí 2013 11:08

Leik frestað í Þorlákshöfn

Tekin hefur verið sú ákvörðun að fresta leik á öðrum hring á stigamóti unglinga á Íslandsmótaröðinni sem fram átti að fara í Þorlákshöfn í dag. Meira
Golf 19. maí 2013 10:28

Unga kynslóðin fann fyrir vindinum í Þorlákshöfn

Kristján Benedikt Sveinsson úr Golfklúbbi Djúpavogs og Gísli Sveinbergsson úr Keili léku á pari á fyrri hring fyrsta stigamóts sumarins á Íslandsbankamótaröð unglinga í Þorlákshöfn í gær. Meira
Golf 19. maí 2013 09:00

Fór holu í höggi í sínu fyrsta höggi

Ungur kylfingur úr Keili í Hafnarfirði, Bryndís María Ragnarsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór á holu í höggi í sínu fyrsta höggi á fyrsta stigamóti unglinga sem leikið er um helgina í Þorlákshöfn. Meira
Golf 16. maí 2013 06:30

Golfvertíðin hefst um helgina

Í vikunni var undirritað samkomulag á milli Golfsambands Íslands og Íslandsbanka um barna- og unglingastarf sambandsins í sumar. Meira
Golf 12. maí 2013 23:32

Tiger Woods vann Players-golfmótið í kvöld

Tiger Woods tryggði sér í kvöld sigur á Players-golfmótinu með því að spila lokadaginn á 70 höggum eða tveimur höggum undir pari. Woods lék tveimur höggum betur en næstu menn sem voru Svíinn David Lin... Meira
Golf 12. maí 2013 11:57

Garcia ósáttur við Tiger Woods

Sergio Garcia kenndi öskrum áhorfenda um misheppnað högg sem varð til þess að forysta hans á Players-mótinu fór fyrir bý. Garcia og Tiger Woods spiluðu saman þriðja hringinn á mótinu í gær. Meira
Golf 11. maí 2013 12:00

Tiger andar ofan í hálsmálið á Garcia

Spánverjinn Sergio Garcia er kominn með forystu á Players-meistaramótinu eftir annan hring. Tiger Woods er höggi á eftir Garcia. Meira
Golf 10. maí 2013 12:00

Tiger og Rory heitir á Sawgrass

Tiger Woods og Rory McIlroy byrjuðu báðir vel á Players-meistaramótinu í golfi sem fram fer á Sawgrass-vellinum þekkta. Meira
Golf 09. maí 2013 13:00

Golfsumarsins beðið

Kylfingar á höfuðborgarsvæðinu eru farnir að munda kylfurnar og vel það því margir af stærstu golfvöllum svæðisins verða opnaðir í dag eða um helgina. Meira
Golf 02. maí 2013 20:30

Tólf ára á Evrópumótaröðinni

Ye Wocheng, tólf ára kínverskur áhugakylfingur, varð í dag sá yngsti í sögunni til þess að keppa á Evrópumótaröðinni. Wocheng vill þó líklega gleyma frumrauninni sem allra fyrst. Meira
Golf 02. maí 2013 19:30

Óvíst hvenær hefja má leik á Leirdalsvelli

Guðmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri á Leirdalsvelli, segir að veður þurfi að batna til muna eigi kylfingar að geta hafið leik á vellinum þann 9. maí eins og vonir standa til. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Golf / Öskur setti Tiger úr jafnvægi | Eins höggs forskot fyrir lokahringinn
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000