Innlent

Öskufljótir slökkviliðsmenn slökktu eld í gámi við Hólabrekkuskóla

Birgir Olgeirsson skrifar
Þegar klukkuna vantaði 12 mínútur í níu í kvöld barst slökkviliði höfuðborgarsvæðisins tilkynning um eld í gámi við Hólabrekkuskóla. Slökkviliðsmenn ruku á vettvang á dælubíl og tæpum hálftíma síðar höfðu þeir ráðið niðurlögum eldsins. Engin slys urðu á fólki en eldsupptök eru ekki kunn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×