Fótbolti

Öskubuskuævintýri Hoffenheim heldur áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Julian Nagelsmann er aðeins 29 ára en að stýra liði í toppslag þýsku 1. deildarinnar.
Julian Nagelsmann er aðeins 29 ára en að stýra liði í toppslag þýsku 1. deildarinnar. Vísir/Getty
Hoffenheim heldur áfram að gera frábæra hluti í þýsku 1. deildinni en liðið komst aftur á sigurbraut eftir þrjú jafntefli í röð með öruggum 4-0 sigri á Köln.

Bæði lið fóru frábærlega af stað í þýsku deildinni en hafa gefið eftir í síðustu umferðum. Hoffenheim er þó enn ósigrað eftir tólf leiki en sjö af þeim hafa lokið með jafntefli.

Hoffenheim er stýrt af hinum 29 ára Julian Nagelsheim sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir velgengni liðsins. Bæði Hoffenheim og Köln voru með 22 stig fyrir leiki helgarinnar en Hoffenheim hoppar nú upp í fjórða sæti deildarinnar með sigrinum.

Sandro Wagner skoraði tvö marka Hoffenheim í dag og þeir Jeremy Toljan og Mark Uth eitt hvor. Wagner er í hópi markahæstu leikmönnum þýsku deildarinnar með sjö mörk.

Aðeins eitt annað lið í deildinni er enn ósigrað en það eru nýliðar Leipzig sem misstu toppsæti deildarinnar til Bayern, sem vann 3-1 sigur á Mainz, í gærkvöldi. Leipzig getur þó endurheimt efsta sætið með því að leggja Schalke að velli í kvöld. Sá leikur hefst klukkan 17.30.

Aubameyang er fagnað í dag.Vísir/Getty
Dramatískur sigur Berlínarbúa

Hertha Berlín hélt þriðja sætinu með 3-2 sigri á Wolfsburg á útivelli þar sem Salomon Kalou skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Dortmund er í fimmta sætinu eftir 4-1 sigur á Gladbach í dag. Pierre-Emerik Aubameyang skoraði tvö mörk fyrir Dortmund og er langmarkahæsti leikmaður deildarinnar með fimmtán mörk í tólf leikjum.

Aron Jó ónotaður varamaður

Þá hafði Werder Bremen betur gegn Ingolstadt, 2-1, en Aron Jóhannsson var ónotaður varamaður í fyrrnefnda liðinu. Þetta var fyrsti sigur Bremen í deildinni síðan 15. október.

Bayern og Leipzig eru bæði með 30 stig á toppnum en Bayern er ofar á markatölu. Leipzig á þó leik til góða sem fyrr segir.

Hertha, Hoffenheim, Dortmund og Eintracht Frankfurt koma í næstu sætum á eftir en Werder Bremen er í fjórtánda sætinu með aðeins ellefu stig eftir þrettán leiki.

Augsburg, lið Alfreðs Finnbogasonar, er í tólfta sæti með þrettán stig en liðið mætir Frankfurt á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×