Tónlist

Öskrar og grætur í pappírshrúgu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Íslenska leikkonan Sólveig Eva leikur aðalhlutverkið í tónlistarmyndbandi fyrir lagið Sick of You með hljómsveitinni The Scheme

Í myndbandinu sést Sólveig meðal annars öskra og gráta í pappírshrúgu og brjóta nokkra diska.

Sólveig útskrifaðist úr leiklistarskólanum Rose Bruford í London í september í fyrra og vinnur með tveimur leikhópum: Nonsuch Theatre og Spindrift Theatre. Þann síðarnefnda rekur hún með Bergdísi Júlíu og sýna þær sýninguna Carroll: Berserkur í Tjarnarbíói eftir jól.

„Ég var líka að leika eitt titilhlutverkið í kvikmyndinni World War Dead: Rise of the Fallen eftir Bart Ruspoli og Freddie-Hutton Mills sem kemur út eftir jól. Þar vann ég með alveg yndislegu fólki og var svo heppin að fara með þeim í samlestur um daginn til að vinna handritið að næstu kvikmynd,“ segir Sólveig sem hefur í nægu að snúast þessa dagana.

„Ég flyt til New York eftir áramót til að búa með manninum mínum sem er að læra leiklist í AMDA en við vorum bæði að fá græna kortið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×