Bíó og sjónvarp

Óskarinn fer fram á nafnalista frá verðlaunahöfum til að stytta ræðurnar

Birgir Olgeirsson skrifar
Matthew McConaughey hélt afar langa ræðu þegar hann tók við verðlaunum fyrir leik sinn kvikmyndinni The Dallas Buyers Club árið 2014.
Matthew McConaughey hélt afar langa ræðu þegar hann tók við verðlaunum fyrir leik sinn kvikmyndinni The Dallas Buyers Club árið 2014. Vísir/Getty
Skipuleggjendur Óskarsverðlaunahátíðarinnar hafa beðið þá sem tilnefndir eru í ár að afhenda lista fyrir hátíðina sem inniheldur nöfn þeirra sem þeir vilja skila þakklæti til ef svo vill að þeir vinna verðlaunin.

Mun þessi nafnalista síðan rúlla yfir skjáinn á meðan þakkarræðu viðkomandi stendur. Er þetta gert til að stytta þakkarræðurnar. Skipuleggjendurnir gefa verðlaunahöfum 45 sekúndur til að þakka fyrir sig. Ef þeir fara yfir þau tímamörk þá er ræðunni drekkt í tónlist og þeir beðnir um að yfirgefa sviðið.

Var þetta tilkynnt þegar þeir sem tilnefndir eru í ár hittust í árlegum hádegisverði í Hollywood í gær. Breytingin er tilkomin sérstaklega vegna atviks sem átti sér stað á hátíðinni í fyrra. Þegar þær Ellen Goosenberg Kent og Dana Perry tóku við verðlaunum fyrir bestu stuttheimildarmyndina, Crisis HotlineVeterans Press 1, þá fóru þær yfir 45 sekúndna tímamörkin. Um það leyti hafði Dana Perry byrjaði að segja frá því þegar sonur hennar fyrirfór sér og hvaða áhrif það hafði á hana sem kvikmyndagerðarkonu.

Inni á vef breska dagblaðsins The Guardian eru að finna nokkur dæmi um ræður sem hafa farið yfir tímamörkin og þegar skipuleggjendur hátíðarinnar voru kannski full fljótir á sér við að þagga niður í verðlaunahöfum.

Er til að mynda rifjað upp þegar Julia Roberts tók við Óskarsverðlaunum árið 2001 fyrir hlutverk sitt sem Erin BrockovichRoberts lét strax vita að hún ætti eftir að segja margt og mikið og beindi orðum sínum að tónlistarstjóranum. „Þú ert að gera ótrúlega góða hluti, en ert frekar snöggur með þetta prik, fáðu þér því bara sæti, því ég mun kannski aldrei fá að vera hérna aftur,“ sagði Roberts og hélt rúmlega þriggja mínútna ræðu í kjölfarið.

Cuba Gooding Jr. sneri vörn í sókn þegar hann tók við Óskarsverðlaununum fyrir aukahlutverk sitt í Jerry Maguire árið 1997. Notaði hann tónlistina sem átti að þagga niður í honum sem undirspil fyrir þakkarræðu sína á meðan hann sagðist elska allt og alla.

Árið 2008 fengu þau Glen Hansard og Marketa Irglova Óskarsverðlaun fyrir lagið Falling SlowlyHansard missti sig aðeins og þegar loksins var komið að Marketa var búið að slökkva á hljóðnemanum og þau yfirgáfu sviðið án þess að hún fengi að segja orð. Varð það til þess að kynnirinn Jon Stewart kallaði hana aftur fram á sviðið þar sem hún fékk að þakka fyrir sig.

Þá er einnig minnst á pólska leikstjórann Pawel Pawlikowski sem náði að þagga niður í hljómsveitinni þegar hann þakkaði fyrir sig eftir að myndina hans Ida var valin besta erlenda myndin á hátíðinni í fyrra. Hann þakkaði pólska tökuliðinu sínu ásamt eiginkonu sinni og foreldrum sem höfðu fallið frá. Hljómsveitin minnti hins vegar aftur á sig með miklum pákuslætti og varð Pawlikowski að yfirgefa sviðið í kjölfarið.

Hátíðin í ár fer fram sunnudaginn 28. febrúar næstkomandi í Dolby-höllinni í Hollywood.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×