Viðskipti innlent

Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála

Atli Ísleifsson skrifar
Óskar Jósefsson tekur við starfinu af Herði Þórhallssyni.
Óskar Jósefsson tekur við starfinu af Herði Þórhallssyni.
Óskar Jósefsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála. Hann tók til starfa í gær.

Rekstarfélag Stjórnstöðvar ferðamála auglýsti starfið laust til umsóknar í maí og var Óskar valinn úr hópi 42 umsækjenda, en Hagvangur annaðist ráðningaferlið ásamt stjórn rekstarfélagsins.

Hörður Þórhallsson var ráðinn framkvæmdastjóri Stjórnstöðvarinnar í lok síðasta árs, en hann lét af störfum í vor.

Í frétt á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins er haft eftir Óskari að hann segi þetta vera mjög áhugavert starf að takast á við og mörg spennandi verkefni sem bíða.

„Innleiðing Vegvísis er komin vel af stað og mikilvægt að halda áfram að vinna að enn frekari samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði ferðamála. Flest bendir til þess að áfram verði öflugur vöxtur í ferðaþjónustu. Við Íslendingar stöndum frammi fyrir ýmsum áhugaverðum áskorunum við að byggja upp sem besta umgjörð um þessa atvinnugrein og með þeim hætti að um hana ríki  sátt í samfélaginu“, segir Óskar.

Í fréttinni segir að Óskar Jósefsson hafi víðtæka stjórnunarreynslu og hafi starfað við stjórnendaráðgjöf til margra ára, bæði á almennum og opinberum markaði. „Hann hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, stofnaði ráðgjafarfyrirtækið Advance ehf. árið 2008 og hefur rekið það síðan, auk þess að sinna ýmsum öðrum verkefnum. Hann hefur fjölbreytta reynslu af því að leysa flókin verkefni og tók meðal annars við stöðu forstjóra hjá Landssíma Íslands hf. á umbrotatímum og leiddi fyrirtækið í gegnum þá. Hann var forstjóri Ístaks hf. og framkvæmdastjóri upplýsinga- og tæknisviðs Kaupþings banka, auk þess sem hann stýrði ráðgjafastarfsemi PwC um nokkura ára skeið. Óskar er verkfræðingur með M.Sc. gráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði frá Danmörku.

Ríkið og Samtök ferðaþjónustunnar stofnuðu í vor sameignarfélag um rekstur Stjórnstöðvar ferðamála. Nafn þess er Rekstrarfélag Stjórnstöðvar ferðamála sf. og er það í 50% eigu ríkissjóðs og 50% í eigu Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnstöð ferðamála er samstarfsvettvangur stjórnvalda, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka ferðaþjónustunnar. Stjórnstöð ferðamála mun starfa til ársloka 2020 og er henni ætlað að vinna að innleiðingu þeirra verkefna sem sett voru fram í Vegvísi í ferðaþjónustu,“ segir í fréttinni.


Tengdar fréttir

Fyrstu hugmyndir Stjórnstöðvar ferðamála kynntar á vormánuðum

Tæplega 1,3 milljónir ferðamanna komu hingað til lands í gegnum Keflavíkurflugvöll á síðasta ári sem er um þrjátíu prósenta fjölgun frá árinu áður. Stefnt er að því að kynna fyrstu hugmyndir nýstofnaðrar Stjórnstöðvar ferðamála í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×