Fótbolti

Óskar Hrafn: Leiðinlegur Mourinho er að eyðileggja Manchester United

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikur Sevilla og Manchester United í Meistaradeild Evrópu í gær verður ekki minnst fyrir skemmtileg tilþrif og allra síst frá leikmönnum enska liðsins. Gagnrýnin hefur borist að knattspyrnustjóranum Jose Mourinho og var staða hans rædd í Meistaradeildarmörkunum eftir leik á Stöð 2 Sport í gær.

Ríkharð Óskar Guðnason fór þá yfir stöðuna með þeim Bjarna Guðjónssyni og Óskari Hrafni Þorvaldssyni en óhætt er að segja að sá síðastnefndi sé ekki ánægður með framferði Mourinho og hvaða áhrif hann hefur haft á lið Manchester United. Mourinho virtist ofan á allt einfaldlega leiðast á hliðarlínunni í gær.

„Maður trúir því ekki að maður sér á horfa á knattspyrnustjóra hjá einu stærsta félagsliði í heimi í einni stærstu keppni í heimi. Það lítur út fyrir að hann sé að bíða eftir því að stærðfræðikeppni sé að byrja í MR,“ sagði Óskar Hrafn sem sagðist enn fremur aldrei hafa verið neitt sérstaklega hrifinn af þeim sjálfur.

Mourinho hafði verið fremur viðskotaillur á blaðamannafundi eftir leik og tók illa í spurningu blaðamanns um hlutverk Alexis Sanchez í liðinu. Óskar Hrafn sagði að það væri bara eitt af mörgum dæmum um hegðun Mourinho sem hann væri ekki hrifinn af.

„Hvernig hann hagaði sér á þessum blaðamannafundi, hvernig hann var í þessum leik, hvernig hann stillti upp þessum leik, hvernig hann er búinn að vera undanfarnar vikur,“ sagði Óskar Hrafn.

„Hann er leiðinlegur utan vallar og leiðinlegur í tilsvörum. Hann er leiðinlegur þegar hann leggur leikinn upp. Hann er bara leiðinlegur. Og hann er bara að eyðileggja United.“

„Þetta er leiðinlegasti leikur sem ég hef horft á lengi. Ég leið vítiskvalir yfir samantektinni ef það er hægt að kalla þetta samantekt. Það væri skemmtilegra að horfa á málningu þorna en að horfa á United spila,“ sagði Óskar Hrafn og hélt áfram.

„Það var hræðilegt að horfa á þetta. Þetta er lið sem kostar mörg hundruð milljónir punda. Með knattspyrnustjóra sem er á ofurlaunum fyrir að stýra þessu. Hann er lélegur og leiðinlegur, liðið er lélegt og leiðinlegt og góðir leikmenn eru að spila illa. Hættu þessu! Farðu bara og finndu þér eitthvað annað að gera, Jose Mourinho.“


Tengdar fréttir

Pogba á bekknum gegn Sevilla

Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, verður varamaður í kvöld í leik liðsins gegn Sevilla í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. BBC greinir frá þessu á vef sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×