Menning

Óskar eftir leikurum með mónólóga

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Katla Rut Pétursdóttir: "Ef þetta gengur upp og fólk vill taka þátt í þessu er meiningin að hafa svona kvöld reglulega í vetur.“
Katla Rut Pétursdóttir: "Ef þetta gengur upp og fólk vill taka þátt í þessu er meiningin að hafa svona kvöld reglulega í vetur.“ Vísir/GVA
Við erum að auglýsa eftir listamönnum sem vilja koma og flytja mónólóg í stóra sal Tjarnarbíós þann 17. júlí,“ segir Katla Rut Pétursdóttir leikkona sem átti hugmyndina að uppákomunni og hefur umsjón með henni. „Listformið er mjög opið, textinn getur verið frumsaminn, klassískur mónólóg úr heimsbókmenntunum, unninn upp úr minningargrein, frétt, bílnúmeraplötum eða bara hverju sem fólki dettur í hug,“ bætir hún við.



Það er þó ekki skilyrði að fólk treysti sér til að flytja textann sjálft heldur munu Katla og samstarfskona hennar, Halldóra Markúsdóttir, aðstoða textahöfunda við að komast í samband við leikara til að flytja mónólóginn sé þess óskað. „Það er svo mikið af skúffuskrifurum sem dreymir kannski um að sjá verkin sín lifna við þótt þau vilji kannski ekki flytja þau sjálf.“



Hámarkslengd hvers mónólógs er tíu mínútur en Katla segir hverjum og einum í sjálfsvald sett hvernig sá tími er nýttur. „Þetta geta verið fimm örmónólógar, einn langur eða þess vegna bara þögn og tvö orð. Það er algjörlega frjálst.“



Katla segir hugmyndina að baki verkefninu vera þá að efla samstarf leikara og koma þeim í kynni hverjum við annan. „Það hefur alveg vantað stað þar sem við getum komið saman, æft okkur, fengið uppbyggilega gagnrýni og verið örugg,“ segir hún. „Dansarar eru með dansverkstæði þar sem þeir hittast reglulega og miðla reynslu sinni og okkur langaði að koma upp þannig aðstöðu fyrir leikara. Ef þetta gengur upp og fólk vill taka þátt í þessu er meiningin að hafa svona kvöld reglulega í vetur.“



Umsóknir um þátttöku skulu sendar á netfangið tjarnarbio@gmail.com fyrir 10. júlí. Tilgreina þarf í umsókninni lengd verks og hvaða leikmuna eða aðstoðar viðkomandi þarfnast. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×