Óskar eftir að fá að sýna heima hjá ókunnugum Guðný Hrönn skrifar 17. október 2017 11:30 Brogan leitar nú að sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á að breyta heimili sínu í leikhús eina kvöldstund.
Hin breska Brogan Davison úr sviðslistahópnum Dance for Me leitar nú að fólki sem hefur áhuga á að breyta heimili sínu í leikhús eina kvöldstund með því að hýsa sýninguna The Brogan Davison Show. Í þeirri sýningu segir Brogan brandara og sögur úr uppvexti sínum í breskri verkamannastétt, gefur vafasöm heimilisráð og syngur lög og fleira. Aðspurð hvernig heimilum hún sé að leita að segir Brogan sig vera opna fyrir öllu í Reykjavík. „Hver og einn vettvangur hefur upp á eitthvað nýtt að bjóða hverju sinni. Þannig að ef fólk er opið fyrir að bjóða mér heim til sín, þá er það heimilið sem ég er áhugasöm um. Það er alltaf notalegt að vera boðið inn á heimili fólks,“ segir Brogan sem mun flytja sýninguna á fimm heimilum. Húsráðandi gegnir svo því hlutverki að bjóða gestum að koma á sýninguna. „Gestgjafinn býður þeim sem hann vill á sýninguna; vinum, fjölskyldu, nágrönnum, plöntum eða gæludýrum og hann þarf líka að vera heima nokkrum klukkustundum áður en sýningin hefst, svo ég geti komið við og undirbúið allt saman. Ég og gestgjafinn ákveðum í sameiningu hvar sviðið á að vera og og ég set upp leikhúslýsingu. Svo á meðan á sýningunni stendur þá ber ég ábyrgð á að bjóða upp á góðan gjörning,“ segir Brogan spurð út í hvaða hlutverki gestgjafinn gegni, fyrir utan að bjóða fram heimili sitt.Brogan Davison og Pétur Ármannsson mynda sviðslistahópinn Dance for Me sem var stofnaður árið 2013.MYND/SigurðUR ÞÓRBrogan segir hugmyndina um að færa sýningu inn á heimili fólks sprottna út frá því að vanalega er dæminu snúið við. „Við færum oft raunverulegar sögur og upplifanir fólks upp á svið. Í þetta sinn vildum við prófa að snúa þessu við og færa sviðið inn í raunverulegt umhverfi,“ útskýrir Brogan sem bendir einnig á að varnarleysi sé eitt aðal viðfangsefni Dance For Me.„Þetta fyrirkomulag býður svo sannarlega upp á berskjöldun, bæði fyrir mig sem flytjanda og eins húsráðandann.“ „En þetta er ákveðin samvinna og ég vona að gestgjafinn sé glaður og stoltur eftir kvöldið. Það myndast frábær stemmning þegar öllum er troðið inn í stofu til að njóta sýnigar,“ segir Brogan glöð í bragði. Að lokum bendir Brogan áhugasömum á að sækja um að vera gestgjafi á netfangið danceformetour@gmail.com með fyrirsögninni „Ég vil bjóða heim The Brogan Davison Show“. Umsóknarfrestur er til 20. október. Verkið verður svo frumsýnt á alþjóðlegu sviðslistahátíðinni Everybody’s Spectacular í Reykjavík, 15.-18. nóvember 2017.
Mest lesið Talin ólíklegust til að komast áfram Lífið Bauð öllum bæjarbúum í matarboð Lífið Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins Bíó og sjónvarp „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Lífið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Myndavél frá afa algjör fjársjóður Tíska og hönnun „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Lífið „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Lífið Gult og glæsilegt einbýlishús Sölva til sölu Lífið Samantha Davis er látin Lífið Fleiri fréttir Bauð öllum bæjarbúum í matarboð Talin ólíklegust til að komast áfram „Æskuheimilið hans er bara rústir“ Gult og glæsilegt einbýlishús Sölva til sölu „Ekki lengur þræll þess að finnast ég ekki nóg“ Magnea fór upp á fjall á tryllitæki Margrét Ýr og Reynir nýtt par „Vildi greinilega ekki að einhver úr fjölskyldunni kæmi að honum“ Samantha Davis er látin Höfundur Kaupalkabókanna með krabbamein í heila Eva Ruza og Gunna Dís inn fyrir Gísla og Felix Nýbökuðu hjónin kíktu í kaffi til Guðna Bergur og Inga Lóa selja eitt glæsilegasta hús Garðabæjar Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Gengur hundrað kílómetra með hundrað kílóa sleða Bassi Maraj og Patrekur í svínslegu stuði Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum „Ég fæ það of fljótt, hvað get ég gert?“ Eyfi flutti Nínu með Hinsegin kórnum Steldu stíl nýja ráðherrans Litfögur listamannaíbúð í Hlíðunum Systkinin í Celebs frumfluttu lag Barnamenningarhátíðar Galvaskar á Gugguvaktinni Ragnar dillaði sér á Dillon og nýr ráðherra naut lífsins í Borgartúni Sjá meira