Óskaði eftir skilnaði þremur vikum áður en hún fannst látin á Akranesi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. maí 2016 11:17 Mánuður er liðinn síðan hjónin fundust látin á heimili sínu þann 13. apríl síðastliðinn. Vísir/gva
Nadezda Edda Tarasova hafði óskað eftir skilnaði við eiginmann sinn Guðmund Val Óskarsson þremur vikum áður en þau fundust bæði látin á heimili þeirra á Akranesi þann 13. apríl síðastliðinn. Ljóst þykir að Guðmundur Valur hafi skotið konu sína áður en hann framdi sjálfsmorð. Rannsókn málsins er svo gott sem lokið en enn er beðið eftir formlegri niðurstöðu úr efnagreiningu meinafræðinga.Rannsókn að ljúka og niðurstöður notaðar í einkamálumMánuður er liðinn síðan Guðmundur Valur og Nadezda fundust látin í íbúð sinni. Jónas Hallgrímur Ottósson lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Vesturlandi segir að rannsókninni sem slíkri sé í sjálfu sér lokið. Beðið sé eftir formlegri niðurstöðu úr efnagreiningu frá meinafræðingum. Eins og gefur að skilja er enginn til að ákæra í málinu. Því fer málið í einhvers konar niðurstöðuferli áður en það verður afhent ríkissaksóknara. Þar verður málinu að líkindum hætt í ljósi þess að enginn er til að saksækja. Niðurstöður í málinu verða að líkindum fyrst og fremst nýttar í einkamálum sem oft taki við í málum sem þessum að sögn Jónasar.Vonar að sagan verði öðrum konum til varnaðar Julia, dóttir Nadezdu, segir í viðtali við Önnu Marsibil Clausen á Mbl.is telja að hægt hefði verið að grípa fyrr inn í og koma í veg fyrir það sem gerðist. Sömuleiðis vonar hún að saga móður hennar geti orðið öðrum víti til varnaðar og komið í veg fyrir að aðrar konur mæti sömu örlögum. Nauðsynlegt sé að nágrannar og samstarfsfólk láti vita þegar þeir upplifi að ekki sé allt með feldu. Vísar Julia til þess að grunur virðist hafa kviknað að ekki væri allt með feldu um leið og Nadezda mætti ekki til vinnu að morgni 13. apríl. Lögregla og sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til og fór inn í íbúð hjónanna þar sem þau fundust látin. „Þetta er ekki óalgengt. Ég er búinn að vera í þessu í nokkuð mörg ár og við förum oft og athugum með fólk. Það er hringt af vinnustað eða frá ættingjum því það næst ekki í einhvern og allt er slökkt. Þá förum við og athugum málið,“ sagði Jón S. Ólafsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, við Fréttablaðið þann 15. apríl. Julia sér hlutina í nokkuð öðru ljósi. Fór af heimilinu árið 2008 „Þegar mamma mætti ekki í vinnuna var hringt í hana margoft. Ef ég mæti ekki í vinnuna fæ ég tvö eða þrjú símtöl en ekki á tíu mínútna fresti og enginn myndi hringja á lögregluna eftir aðeins einn klukkutíma. Það sama gildir um þig geri ég ráð fyrir. Fólk getur sofið yfir sig, verið veikt... hlutir koma upp á,“ segir Julia í viðtalinu en leggur þó áherslu á að hún kenni engum um hvernig fór. Julia segir móður sína hafa farið frá Guðmundi árið 2008 og flutt sig í íbúð á vegum Rauða krossins. Hann hafi hins vegar beðið hana um að aðstoða sig eftir að sonur hans dó í slysi. „Hann var einmana og bað hana um stuðning og hjálp. Hún vorkenndi honum og flutti aftur inn til hans til að hjálpa honum. Hann lofaði henni að hann myndi breytast,“ segir Julia í viðtalinu. Hún metur það þannig að hann hafi beitt hana andlegu ofbeldi enda hafi móðir hennar fundið til samúðar. Þá hafi Guðmundur lofað að breytast.Starfaði í Grundaskóla Nadezda starfaði í Grundaskóla á Akranesi og hafði gert í um tíu ár. Hún var af rússnesku bergi brotin en mikil ánægja var með hennar störf í skólanum. Hrönn Ríkharðsdóttir, skólastjóri við Grundaskóla, sagði eðlilega alla harmi slegna. Nadezda óskaði eftir skilnaði þremur vikum áður en Guðmundur banaði henni. Julia vill ekki geta í eyðurnar hvort það hafi verið ástæða þess að Guðmundur tók byssuna í hönd. Hún viti í raun ekkert og skilji ekki hvers vegna hann hafi tekið móður sína frá sér þegar hann vissi vel hve heitt hún elskaði hana.Viðtalið við Juliu í heild má lesa á Mbl.is.
Tengdar fréttir Myrti konu sína og svipti sig síðan lífi Hjónin bjuggu í fjölbýlishúsi á Akranesi. 13. apríl 2016 15:48 Alvanalegt að lögregla gái að fólki Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, Jón S. Ólason, segir að ekki megi lesa of mikið í það að lögregla hafi kallað til sérsveit Ríkislögreglustjóra og farið inn í íbúð hjóna á Akranesi, hvar þau fundust látin. 15. apríl 2016 07:00 Varð ekki vör við skothvelli Konan sem myrt var á Akranesi aðfaranótt miðvikudags hafði starfað í Grundaskóla í um tíu ár. 14. apríl 2016 07:00 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ Sjá meira
Myrti konu sína og svipti sig síðan lífi Hjónin bjuggu í fjölbýlishúsi á Akranesi. 13. apríl 2016 15:48
Alvanalegt að lögregla gái að fólki Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, Jón S. Ólason, segir að ekki megi lesa of mikið í það að lögregla hafi kallað til sérsveit Ríkislögreglustjóra og farið inn í íbúð hjóna á Akranesi, hvar þau fundust látin. 15. apríl 2016 07:00
Varð ekki vör við skothvelli Konan sem myrt var á Akranesi aðfaranótt miðvikudags hafði starfað í Grundaskóla í um tíu ár. 14. apríl 2016 07:00