Innlent

Óskað eftir umsögnum vegna heildarendurskoðunar fóstureyðingalaga

Sæunn Gísladóttir skrifar
Óskað er eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf frá þeim sem láta sig efni laganna varða og telja þörf fyrir breytingar.
Óskað er eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf frá þeim sem láta sig efni laganna varða og telja þörf fyrir breytingar. Mynd/Velferðarráðuneytið
Vegna heildarendurskoðunar á lögum um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir er óskað eftir umsögnum og tillögum að breytingum á gildandi löggjöf frá þeim sem láta sig efni laganna varða og telja þörf fyrir breytingar.

Heilbrigðisráðherra skipaði þann 9. mars sl. nefnd til að endurskoða í heild lög nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu varðandi kynlíf og barneignir og um fóstureyðingar og ófrjósemisaðgerðir.

Nefndin hefur ákveðið að undirbúa störf sín með því að óska eftir umsögnum við gildandi löggjöf og tillögum að breytingum með umfjöllun um mikilvægi þeirra. Allir sem láta sig málið varða eru hvattir til að senda inn ábendingar og athugasemdir.

Umsagnir óskast sendar ráðuneytinu á póstfangið postur@vel.is og merktar: Umsögn um lög nr. 25/1975 fyrir 1. maí næstkomandi.


Tengdar fréttir

Íslensk fóstureyðingarlög úrelt og niðurlægjandi

Íslenskir heilbrigðisstarfsmenn segja tímabært að endurmeta fóstureyðingarlög, en ólíkt nágrannalöndum okkar eru fóstureyðingar ekki frjálsar hér á landi. Sérfræðingur segir ferlið eins og það er í dag niðurlægjandi og lögin brjóta á sjálfsákvörðunarrétti kvenna.

Endurskoða löggjöf um fóstureyðingar

Heilbrigðisráðherra segir lög um fóstureyðingar barn síns tíma. Hann hefur falið starfsmönnum innan ráðuneytisins að undirbúa endurskoðun á löggjöfinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×