ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 14:30

Lifði af 300 metra fall - "Ég hélt að ég væri að fara deyja"

FRÉTTIR

Óskabyrjun á ferlinum

Fréttablaðið Gagnrýni 11. september 2012 14:00
Ásgeir Trausti er lærður í klassískum gítarleik, en hefur líka verið að semja og spila popp. Hann er meðal annars meðlimur í hljómsveitinni The Lovely Lion.
Ásgeir Trausti er lærður í klassískum gítarleik, en hefur líka verið að semja og spila popp. Hann er meðal annars meðlimur í hljómsveitinni The Lovely Lion.
Ásgeir Trausti Einarsson er ungur tónlistarmaður sem hefur vakið mikla athygli undanfarna mánuði.

Lagið hans Sumargestur sló í gegn eftir að það var frumflutt í Hljómskálanum í vor og lagið Leyndarmál sem hann sendi frá sér til að fylgja því eftir hefur líka náð miklum vinsældum.

Ásgeir Trausti er lærður í klassískum gítarleik, en hefur líka verið að semja og spila popp. Hann er meðal annars meðlimur í hljómsveitinni The Lovely Lion.

Hann hafði samband við Kidda í Hjálmum í vor til þess að leyfa honum að heyra lögin sín og Kidda leist það vel á að hann dreif hann beint í Hljómskálann og stjórnaði líka upptökum á þessari fyrstu plötu Ásgeirs, Dýrð í dauðaþögn.
Lögin tíu á Dýrð í dauðaþögn eru eftir Ásgeir Trausta, en textarnir eru eftir pabba hans, Einar Georg Einarsson og vin, Júlíus Aðalstein Róbertsson.

Tónlistin er þjóðlagaskotið popp sem einkennist af fallegum laglínum og söng Ásgeirs Trausta, en hann hefur háa og flotta rödd.

Útsetningarnar eru nokkuð fjölbreyttar og mjög vel heppnaðar. Í sumum laganna eru forritaðir raftónlistargrunnar, en í öðrum er allt handspilað upp á gamla mátann.

Það eru blásturshljóðfæri í nokkrum laganna. Þau setja sterkan svip, en einnig eru ásláttarhljóðfæraútsetningarnar á plötunni mjög flottar. Hljómurinn er sömuleiðis fyrsta flokks.

Það er ekki hægt að segja annað en að hinn ungi Ásgeir Trausti fái óskabyrjun á ferlinum.

Hann er bæði efnilegur lagasmiður og söngvari, en að auki fékk hann tækifæri til þess að hljóðrita efnið sitt með mörgum af bestu hljóðfæraleikurum og upptökumönnum landsins.

Útkoman er frábær frumsmíð. Það verður spennandi að fylgjast með Ásgeiri Trausta í framtíðinni.

Trausti Júlíusson

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Gagnrýni 07. maí 2013 17:00

Kaflaskipt Babúsku-frumraun

Á köflum gengur blandan af þjóðlaga- og rafpoppi mjög vel upp hjá Grúsku Babúsku. Meira
Gagnrýni 07. maí 2013 17:00

13 spora kerfi fyrir varúlfa

Hressileg og vel skrifuð unglingasaga með sannferðugum persónum og skemmtilegri útfærslu á átökunum við fíkniefnaneyslu. Meira
Gagnrýni 06. maí 2013 11:30

Óreiðukennt uppgjör við Geirfinnsmálið

Hvörf er hörð ádeila á íslenskt réttarkerfi og glæpsamlega meðferð yfirvalda í einu stærsta sakamáli íslensku þjóðarinnar sem líður fyrir óreiðukennda framsetningu. Meira
Gagnrýni 03. maí 2013 11:35

Allt er þegar þrennt er

Myndin er bæði fyndnari og meira spennandi en forverar hennar, og þrátt fyrir brellusúpuna verður áhorfandinn aldrei dasaður. Meira
Gagnrýni 03. maí 2013 00:01

Ástir, örlög og saxófónn

De Palma er bestur þegar hann reynir ekki að vera annar en hann er. Ég trúi því að hann geti gert miklu betur. Meira
Gagnrýni 26. apríl 2013 15:00

Helvíti – það eru hinir

Nesser er í hópi þeirra bestu og þótt sagan kraumi ekkert af spennu er hún djúp og næm lýsing á samskiptum innan fjölskyldu. Lögreglumaðurinn Barbarotti er líka skrattanum skemmtilegri. Meira
Gagnrýni 22. apríl 2013 15:45

Fínasti fugl

Áhugavert en óþægilegt unglingadrama. Aðalleikarinn Styr Júlíusson er hæfileikaríkur piltur. Meira
Gagnrýni 22. apríl 2013 11:30

Leikhús á öðru plani

Fullkomin útfærsla á skáldsögunni. Mögnuð leikhúsupplifun þar sem unnið er með mörk heilbrigðis og geðsýki á áhrifamikinn hátt sem lætur engan ósnortinn. Meira
Gagnrýni 22. apríl 2013 11:00

Furðuskepnan konan

Krúttlegt leikrit um líkama og sálarástand konunnar en ristir ekki sérstaklega djúpt. Meira
Gagnrýni 21. apríl 2013 14:45

Leikur tveimur skjöldum

Íslenska landslagið nýtur sín afar vel í Oblivion og ekki skemmir glæsileg myndatakan. Meira
Gagnrýni 21. apríl 2013 13:54

Til hamingju Þjóðleikhús

Ævintýri þulið af bjána, fullt af mögli og bulli og merkir ekki neitt. Það er þannig sem Páll Ólafsson lýsir sínum skáldaða veruleika. Þeim veruleika sem stóra svið Þjóðleikhússins hýsir um þessar mun... Meira
Gagnrýni 16. apríl 2013 12:00

Erfið úrvinnsla ástarinnar

Hjalti Rögnvaldsson og Svandís Þóra Einarsdóttir fara með aðalhlutverk í verkinu sem gerist á sveitabæ einum, norður í landi. Meira
Gagnrýni 16. apríl 2013 12:00

ELO-sándið endurskapað í Eldborg

Miðaldra áheyrendahópur fékk nostalgíukastið sem hann borgaði fyrir. Ótrúlega vel tókst til með vandmeðfarið sánd. Meira
Gagnrýni 11. apríl 2013 07:00

Kraftmikið poppkornsfjör og pönkgleði

G.I. Joe: Retaliation er heimskuleg og yfirdrifin. Persónusköpunin er arfaslök og tæknibrellurnar misgóðar. Samt hefur hún eitthvað. Heilmikið meira að segja, því hún er þrælskemmtileg framan af. Meira
Gagnrýni 08. apríl 2013 11:00

Aumir brosvöðvar eftir góða sýningu

Vel lukkað uppistand. Craig Campbell bar af. Ari Eldjárn var pottþéttur að venju. Meira
Gagnrýni 05. apríl 2013 10:00

Óður til leikgleðinnar - og Rambós

Frábær sýning. Kristjáni og félögum tekst þarna að skapa eitthvað fjörugasta skrifstofudrama sem hefur verið fært á svið hér á landi. Meira
Gagnrýni 28. mars 2013 06:00

Berskjaldað búnt

Það er örugglega meira en að segja það að fá áhorfandann til að trúa því að mennskur skriðdreki á borð við Johnson geti verið svona berskjaldaður. Meira
Gagnrýni 25. mars 2013 17:00

Hömluleysi á Jónsmessunótt

Ögrandi og djörf sýn ungs leikhúsfólks á William Shakespeare. Meira
Gagnrýni 21. mars 2013 12:00

Skemmtilegt hliðarspor

Ferskir og flottir taktar frá Thom Yorke og félögum, en lagasmíðarnar hefðu mátt vera sterkari. Meira
Gagnrýni 18. mars 2013 06:00

Grái fiðringurinn fer Grant vel

Frábærir útgáfutónleikar, með þéttri hljómsveit og ótrúlega einlægum og góðum söngvara Meira
Gagnrýni 16. mars 2013 06:00

Besti Tomb Raider í langan tíma

Nýi Tomb Raider-leikurinn nær að blása nýju lífi í leikjaseríuna með miklum hasar, skemmtilegum þrautum og fallegri framsetningu. Meira
Gagnrýni 14. mars 2013 06:00

Rómantískt sjónarhorn

Snotur sýning, eins konar sýnishorn fyrir ákveðin tímabil í listasögunni, og gefur smá viðbótarinnsýn í íslenska listsköpun fyrir og eftir aldamótin 1900. Meira
Gagnrýni 11. mars 2013 13:45

Áhætta sem borgaði sig

Útkoman er í einu orði sagt frábær. Biggi Veira klæðir sígildar lagasmíðar Johns Grant í nýjan búning. Meira
Gagnrýni 11. mars 2013 13:45

Kynlíf og dóp en ekkert rokk

Bíð spennt eftir framhaldsbókunum tveimur sem Ejersbo rétt náði að búa til útgáfu áður en hann lést. Meira
Gagnrýni 07. mars 2013 06:00

Raf- og taktvæddar Árstíðir

Árstíðir er ein af þessum harðduglegu íslensku hljómsveitum sem fjármagna plöturnar sínar sjálfar og spila úti um allar trissur. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Óskabyrjun á ferlinum
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000