Enski boltinn

Oscar slapp með skrekkinn

Oscar fær aðhlynningu í leiknum í gær.
Oscar fær aðhlynningu í leiknum í gær. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Oscar hjá Chelsea meiddist í leiknum gegn Arsenal um helgina og var fluttur á spítala.

Óttast var að hann hefði fengið heilahristing er hann lenti í harkalegu samstuði við David Ospina, markvörð Arsenal.

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, viðurkenndi að hafa verið hræddur um Oscar enda leit þetta ekki vel út.

Rannsóknir komu vel út og honum var sleppt af spítalanum í gærkvöldi. Hann gat því sofið heima hjá sér og verður með Chelsea í næsta leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×