Lífið

Oscar de la Renta látinn

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Oscar de la Renta
Oscar de la Renta Vísir/getty
Tískuhönnuðurinn Oscar de la Renta er látinn, 82 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í gærkvöldi, umkringdur fjölskyldu og hundunum sínum.

De la Renta var þekktur fyrir klassískan og kvenlegan fatnað og voru kjólarnir hans aðalsmerki. Nú síðast hannaði hann brúðarkjól Amal Alamuddin eiginkonu George Clooney, en einnig sýndi hann línu á tískuvikunni í New York í september. 



Einn eftirminnilegasti kjóll de la Renta er bleiki kjóllinn sem Sarah Jessica Parker klæddist í síðustu seríu Sex and the city. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×