George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, segir þá ákvörðun Stephen Hester, forstjóra Royal Bank of Scotland, að þiggja ekki bónusgreiðslu upp á eina milljóna punda, jafnvirði ríflega 190 milljóna króna, vera skynsamlega og rökrétta. „Skattgreiðendur settu milljarða punda inn í rekstur bankans þegar hann var að falla, og það er eðlilegt að þeir njóti forgangs þegar vel gengur," sagði Osborne í viðtali við breska blaðið The Guardian í morgun.
Royal Bank of Scotland er að stærstum hluta í eigu breska ríkisins, en það fer með um 83 prósent eignarhlut í bankanum. Bónusar til starfsmanna breskra banka hafa valdið miklu fjaðrafoki þar í landi að undanförnu, ekki síst vegna þess að margir kenna bankamönnum um hvernig horfir nú við í efnahagsmálum landsins. Atvinnuleysi er hátt í sögulegu samhengi, eða ríflega átta prósent, og mikill slaki hefur einkennt efnahag landsins. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því að hagvöxtur verði óverulegur á þessu ári, eða í kringum eitt prósent.