Lífið

Öryggisverðir lýsa andlegu ofbeldi sem þeir verða fyrir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Joseph og Sergio fengu að heldur betur að heyra það.
Joseph og Sergio fengu að heldur betur að heyra það.
Joseph Hernandez og Sergio Castillo starfa sem öryggisverðir og fengu þeir það verkefni að passa að allt færi rétt fram á bandarísku myndbandaráðstefnunni Vidcon á dögunum.

Ráðstefnan er gríðarlega eftirsótt og er í raun um ræða einskonar hátíð. Færri komast að en vilja og þurftu þeir Hernandez og Castillo að standa vaktina um helgina.

Mennirnir fengu heldur betur að heyra það frá pirruðum aðdáendum sem komust ekki að. Eitt vinsælasta myndbandið á Reddit um þessar mundir er af öryggisvörðunum tveimur að lýsa þessum erfiða degi í vinnunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×