Erlent

Öryggisgæsla forsetans kostar fúlgur fjár

Samúel Karl Ólason skrifar
Melania og Donald Trump stíga út úr flugvél forsetans.
Melania og Donald Trump stíga út úr flugvél forsetans. Vísir/Getty
Kostnaður ríkisins vegna lífstíls Donald Trump og fjölskyldu hans veldur miklum vandræðum fyrir lífverði forsetans (Secret Service) og kostar ríkið óhemju af peningum. Kostnaðurinn mun vera töluvert hærri en kostnaðurinn vegna fyrri forseta. Þá rennur hluti kostnaðarins beint í vasa Trump fjölskyldunnar. Nú í dag mun Trump fara til Flórída með allt sitt fylgdarlið til að verja helginni í sveitaklúbbi sínum Mar-a-Lago.

Þetta er þriðja helgin í röð sem Trump heldur til í Mar-a-Lago.

Embættismenn í Palm Beach sýslu, þar sem klúbburinn er, ætla sér að senda yfirvöldum í Washington reikninginn fyrir öryggisvörslu lögregluþjóna þeirra í kringum Mar-a-Lago.

Kostnaður New York borgar, vegna öryggisgæslu í og við Trump Tower, þar sem Melania Trump og sonur þeirra Barron búa er um hálf milljón dala á dag. Þá munu synir Trump, þeir Eric og Don yngri fara til Sameinuðu arabísku furstadæmanna um helgina til að opna nýjan Trump-golfvöll. Lífverðir Secret service fylgja þeim með tilheyrandi kostnaði.

Eric ferðaðist nýverið til Úrúgvæ þar sem hann var að kynna nýjan Trump turn og samkvæmt frétt Washington Post, kostaði hótelgistingin fyrir lífverði hans nærri því hundrað þúsund dali. Þá fór hann einnig til Dóminíska lýðveldisins og mun fara til Kanada á næstunni.

Samtökin Judicial Watch fylgdust náið með ferðakostnaði Barack Obama og áætluðu að yfir átta ár hafi kostnaður vegna ferðalaga hans og fjölskyldu hans verið um 97 milljónir dala. Fyrstu fjórar vikur Donald Trump í embætti gefa hins vegar í skyn að kostnaður muni nema hundruðum milljóna dala á kjörtímabilinu.

Washington Post bendir á að hluti þess kostnaðar ríkisins sem fer í að vernda hann og hýsa endar í hans eigin vasa. Sem dæmi hafi Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna og Secret service íhugað að leigja hæð í Trump Tower í New York sem kostar allt að eina og hálfa milljón dala á ári. Þar að auki bætist auglýsingargildi umfjöllunarinnar um Trump og eignir hans við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×