Fastir pennar

Örvænting á húsnæðismarkaði

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Byggja þarf að minnsta kosti 8.000 íbúðir á landinu öllu á næstu þremur árum til að halda í við fólksfjölgun. Afar ólíklegt er það náist og mun sú staðreynd aðeins ýta undir frekari hækkanir á íbúðamarkaði.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu greiningardeildar Arion banka um húsnæðismarkaðinn sem kom út í lok síðasta mánaðar. Húsnæðisverð hefur hækkað mikið að undanförnu og nam árshækkunin á höfuðborgarsvæðinu 15 prósentum í desember. Hækkun utan höfuðborgarsvæðisins nemur 20 prósentum og skýrist aðallega af mikilli hækkun í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar. Skýrsluhöfundar spá áframhaldandi hækkunum, 14 prósent í ár, 9,7 prósent á næsta ári og 7,5 prósent árið 2019.

Hækkun húsnæðisverðs skýrist af því að of lítið hefur verið byggt á síðustu árum og áætlanir um uppbyggingu hafa ekki staðist. Fram kemur í skýrslunni að uppbyggingaráform á höfuðborgarsvæðinu hafa gengið illa eftir. Nýjustu áætlanir Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Samtaka iðnaðarins gera samt ráð fyrir kröftugri uppbyggingu á næstu árum. Fjöldi nýrra íbúða mun nema 6.600-8.000 eftir því við hvaða áætlun er miðað. Vandamálið er að aukning á framboði kemur allt of seint. Langt er í að framboð mæti eftirspurn þannig að markaðurinn komist í jafnvægi. Seinkun á auknu framboði nýrra íbúða gæti ýtt undir enn frekari hækkanir á næstunni.

Nokkurs konar örvæntingarástand virðist ríkja á húsnæðismarkaði um þessar mundir. Í þessu blaði var greint frá því í gær að íbúðir í öllum hverfum borgarinnar seldust nú á hærra verði en uppsettu vegna mikillar spennu á markaðnum. Dæmi væru um að fasteignakaupendur gerðu tilboð í húsnæði án þess að hafa séð eignina áður. Á þessum „seljendamarkaði“ mætir mikill fjöldi til að skoða íbúðir og kaupendur keppast við að yfirbjóða hver annan.

Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu bera ábyrgð á því að áform um uppbyggingu á íbúðarhúsnæði hafa brugðist. Stefna Reykjavíkurborgar um þéttingu byggðar er heilbrigð til langframa en vera kann að hún standi uppbyggingu á húsnæði á sanngjörnu verði fyrir þrifum. Borgin hefur lokað „sárum“ með þéttingu byggðar og með uppbyggingu miðsvæðis. Þannig er ekki framboð af litlum og meðalstórum íbúðum í úthverfum borgarinnar þar sem fermetraverð er lægra.

Ljóst er að sveitarfélögin geta ekki setið aðgerðarlaus hjá í þessari þróun og þurfa kjörnir fulltrúar þeirra að hugsa þessi mál upp á nýtt. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, sagði í fréttum Stöðvar 2 á mánudag að það væri æskilegt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu mótuðu sér sameiginlega stefnu í húsnæðismálum. Þetta er góð hugmynd hjá borgarstjóra og væri ágætt fyrsta skref.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu






×