Fótbolti

Öruggt hjá Þjóðverjum | Sjáðu mörkin

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Þýskaland vann öruggan 3-0 sigur á Tékklandi í C-riðli undankeppni heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í Rússlandi 2018 í kvöld.

Thomas Müller kom Þýskalandi yfir strax á 13. mínútu sem reyndist eina mark fyrri hálfleiks.

Toni Kroos tvöfaldaði forystu Þjóðverja á fjórðu mínútu seinni hálfleiks en það var svo Müller sem gerði út um leikinn á 65. mínútu.

Sannfærandi sigur hjá Þýskalandi sem var síst of stór.

Þýskaland er með fullt hús stiga á toppi C-riðils eftir tvo leiki en Tékkland er með eitt stig í fjórða sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×