Handbolti

Öruggt hjá strákunum hans Geirs

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Geir er með Magdeburg í toppbaráttunni
Geir er með Magdeburg í toppbaráttunni vísir/getty
Magdeburg vann öruggan sigur á Lu-Friesenheim 36-28 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Geir Sveinsson þjálfari lið Magdeburg.

Magdeburg var 19-14 yfir í hálfleik og hafði örugga forystu allan leikinn. Andreas Rojewski skoraði 8 mörk fyrir Magdeburg og Robert Weber 7.

Stephan Just var í sérflokki hjá Lu-Friesenheim með 9 mörk en liðið er í næst neðsta sæti deildairnnar með 6 stig.

Magdeburg lyfti sér upp í 5. sæti með sigrinum. Liðið er með 17 stig úr 14 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×