Fótbolti

Öruggt hjá Spánarmeisturunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arda Turan skoraði tvö mörk í kvöld.
Arda Turan skoraði tvö mörk í kvöld. vísir/getty
Barcelona tryggði sér í kvöld spænska Ofurbikarnum eftir 3-0 sigur á Sevilla á Nývangi.

Barcelona var í góðri stöðu eftir 0-3 sigur í fyrri leiknum og vann því einvígið, 6-0 samanlagt.

Ardan Turan skoraði tvö mörk fyrir Barcelona í leiknum í kvöld og Lionel Messi eitt.

Victor Iborra, leikmaður Sevilla, fékk upplagt tækifæri til að jafna metin í 1-1 eftir rúman hálftíma en Claudio Bravo, markvörður Barcelona, varði vítaspyrnu hans.

Keppni í spænsku úrvalsdeildinni hefst um helgina. Barcelona fær Real Betis í heimsókn klukkan 16:15 á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×