Enski boltinn

Öruggt hjá Liverpool í Sydney

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gerrard er hér svekktur eftir að hafa klúðrað góðu færi í leiknum.
Gerrard er hér svekktur eftir að hafa klúðrað góðu færi í leiknum. vísir/getty
Liverpool spilaði vináttuleik gegn Sydney FC í morgun þar sem þrjár Liverpool-goðsagnir spiluðu með liðinu.

Liverpool vann leikinn 3-0 með mörkum frá Daniel Sturridge, Alberto Moreno og Roberto Firmino. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik.

Steven Gerrard og Jamie Carragher voru báðir í byrjunarliði Liverpool í dag og Steve McManaman var á bekknum.

Carragher og Gerrard fóru báðir út af í hálfleik og McManaman spilaði þann síðari.

Tæplega 73 þúsund manns sáu leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×