Handbolti

Öruggt hjá lærisveinum Dags og Kristjáns

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Dagur og félagar eru í góðum málum í C-riðli.
Dagur og félagar eru í góðum málum í C-riðli. vísir/epa
Þjóðverjar og Svíar unnu örruga sigra í leikjum sínum á HM í Frakklandi í dag.

Þýskaland rústaði Síle, 14-35, og er með fjögur stig í C-riðli.

Sílemenn unnu óvæntan sigur á Hvít-Rússum í 1. umferðinni en þeir áttu ekki möguleika gegn Evrópumeisturunum í dag.

Þjóðverjar leiddu með 11 mörkum í hálfleik, 6-17, og á endanum munaði 21 marki á liðunum, 14-35.

Jannik Kohlbacher skoraði átta mörk fyrir Þýskaland og Rune Dahmke sjö.

Kristján Andrésson er enn með 100% árangur sem þjálfari sænska landsliðsins sem rúllaði yfir Argentínu í dag, 17-35.

Svíar eru með fullt hús stiga í D-riðli og mæta Dönum í stórleik á morgun.

Mattias Zachirisson var markahæstur í liði Svíþjóðar með átta mörk. Jim Gottfridsson og Jerry Tollbring skoruðu fimm mörk hvor.

Svíar hafa unnið alla leikina undir stjórn Kristjáns.vísir/epa



Fleiri fréttir

Sjá meira


×