Sport

Öruggt gull hjá Hafdísi í langstökkinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Öruggt gull hjá Hafdísi í langstökkinu í dag.
Öruggt gull hjá Hafdísi í langstökkinu í dag. vísir/anton brink
Hafdís Sigurðardóttir heldur áfram að bæta í gullskápinn á Meistaramóti Ísland í frjálsum íþróttum innanhúss, en keppnin fer fram í Laugardalshöllinni um helgina.

Fyrr í dag vann Hafdís til gullverðlauna í 60 metra hlaupi kvenna, en hún stökk 6,34 metra í langstökki nú fyrir skömmu og stökk tæpan  metra lengra en Vilborg María Loftsdóttir sem varð í öðru sæti.

Breiðablik eignaðist Íslandsmeistara í kúluvarpi en þar kastaði Irma Gunnarsdóttir lengst eða 12,78 metra. Thelma Lind Kristjánsdóttir kom næst með 12,63 metra.

Í hástökki var Þórdís Eva Steinsdóttir, hin unga og efnilega stúlka úr FH, hlutskörpust, en hún stökk 1,68 metra. María Rún Gunnlaugsdóttir og Helga Þóra Sigurjónsdóttir komu næstar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×