Viðskipti erlent

Örtröð við gríska banka í morgun

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bankar voru opnaðir fyrir ellilífeyrisþegum sem fá lífeyri sinn greiddan út í dag.
Bankar voru opnaðir fyrir ellilífeyrisþegum sem fá lífeyri sinn greiddan út í dag. vísir/epa
Greiðslufall varð hjá gríska ríkinu í gær þegar ríkisstjórninni tókst ekki að standa skil á 1,6 milljarða evra láni sem landið skuldar Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Fjármálaráðherrar evruríkjanna hittast á fundi í dag og ræða um nýjasta útspil grísku ríkisstjórnina varðandi það hvernig leysa má úr skuldavanda ríkisins.

 

Örtröð myndaðist við útibú grískra banka í morgun þegar þeir voru opnaðir fyrir ellilífeyrisþegum sem nota ekki greiðslukort og fá lífeyri greiddan út í dag. Bankar í Grikklandi hafa verið lokaðir síðan á mánudag og geta Grikkir aðeins tekiðu út 60 evrur úr hraðbönkum á dag. Ellilífeyrisþegar sem fara í bankann í dag til að taka út pening geta í mesta lagi tekið út 120 evrur.

Þá komu þúsundir saman við gríska þinghúsið  í Aþenu í gærkvöldi og hvöttu til þess að landsmenn segðu já í þjóðaratkvæðagreiðslunni næstkomandi sunnudag. Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um hvort gríska ríkið gangi að tilboði lánadrottna sem felur meðal annars í sér skattahækkanir og niðurskurð í velferðarkerfinu.

 

Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefur hvatt þjóð sína til að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni en leiðtogar Evrópusambandsins hafa varað við því að slík niðurstaða gæti leitt til útgöngu landsins úr evrusamstarfinu.


Tengdar fréttir

Gríska ríkið er gjaldþrota

Grikkir misstu í gær af lokafresti til að borga Alþjóðagjaldeyrissjóðnum 1,6 milljarða evra. Gríska ríkisstjórnin sóttist eftir nýjum samningi um neyðaraðstoð. Skuldir verða enn óbærilegar árið 2030.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×