Svissneska byggingavörukeðjan Bauhaus opnaði formlega verslun sína við Vesturlandsveg klukkan átta í morgun.
Öll sex hundruð bílastæði við húsið voru upptekin löngu fyrir opnunin og var mikil örtröð að komast að húsinu.
Framkvæmdastjóri Bauhaus sagði í samtali við fréttastofu að áætlað væri að um fimm til sex þúsund manns hafi verið mættir.
Margir komu snemma til að taka þátt í happdrætti sem verslunin stóð fyrir en aðrir vildu næla sér í tilboðsvörur svo sem grill, blóm og ljós á undan öðrum.
Verslun Bauhaus er 22 þúsund fermetrar með 120 þúsund vörutegundir, upphaflega stóð til að opna verslunina árið 2008 en því var frestað vegna bankahrunsins.